Taldi sér mismunað um 144 milljónir

Að hennar sögn munaði um 144 milljónum króna á þeirri greiðslu sem hún fékk samkvæmt kaupréttarsamningi sínum og greiðslu til framkvæmdastjóra t…

Konan taldi tjón sitt vegna meintrar mismununar við greiðslu launa á síðustu fjórum starfsárum sínum hjá fyrirtækinu nema tugum milljóna króna. Þar við bættist það tjón sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna úthlutunar kauprétta. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kona sem er fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðssviðs fyrirtækis taldi sér hafa verið mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar og þjóðernisuppruna við ákvörðun launa og úthlutun kauprétta.

Að hennar sögn munaði um 144 milljónum króna á þeirri greiðslu sem hún fékk samkvæmt kaupréttarsamningi sínum og greiðslu til framkvæmdastjóra tæknisviðs fyrirtækisins.

Landsréttur staðfesti í gær sýknu fyrirtækisins af kröfum konunnar um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna meintrar mismununar við ákvörðun launa og kaupréttar.

Dómstóllinn ómerkti hins vegar þann hluta dóms Héraðsdóms Reykjaness þar sem skaðabótaskylda fyrirtækisins vegna uppsagnar konunnar var viðurkennd og fyrirtækinu gert að greiða henni eina milljón króna í miskabætur. Var þeim hluta málsins vísað aftur heim í hérað.

Starfaði hjá fyrirtækinu og forverum þess í rúma tvo áratugi

Konan hafði starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2007 og hjá forverum þess frá árinu 2000. Að loknu háskólanámi árið 2013 tók hún við starfi framkvæmdastjóra markaðsmála.

Henni var úthlutað kauprétti í lok árs 2015 og undirritaði hún endurbættan kaupréttarsamning árið 2020. Greitt var samkvæmt samningnum 11. febrúar 2021.

Konan taldi mikinn mun hafa verið á launum og kaupréttargreiðslum framkvæmdastjóra fyrirtækisins þrátt fyrir að þeir hefðu að hennar mati gegnt jafnverðmætum störfum.

Vísaði hún meðal annars til upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins sem að hennar sögn sýndu að mánaðarlaun hennar árið 2020 hefðu verið rúmri milljón króna lægri en laun framkvæmdastjóra fjármálasviðs og mánaðartekjur hennar tæpum 2,5 milljónum króna lægri en tekjur framkvæmdastjóra tæknisviðs. Báðir voru íslenskir karlmenn.

Þá hefðu þrír íslenskir karlmenn, sem að hennar mati gegndu lægra settum störfum innan fyrirtækisins, verið með hærri laun en hún.

Konan taldi tjón sitt vegna meintrar mismununar við greiðslu launa á síðustu fjórum starfsárum sínum hjá fyrirtækinu nema tugum milljóna króna. Þar við bættist það tjón sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna úthlutunar kauprétta.

Sagt upp tveimur dögum eftir að hún ítrekaði kröfur sínar

Konan sendi stjórn fyrirtækisins bréf 22. júlí 2021 þar sem hún krafðist skaða- og miskabóta vegna þeirrar mismununar sem hún taldi sig hafa orðið fyrir.

Kröfum hennar var hafnað 19. ágúst. Hún ítrekaði þær með öðru bréfi 1. september en kröfunum var aftur hafnað tveimur dögum síðar. Sama dag afhenti forstjóri fyrirtækisins konunni uppsagnarbréf.

Fyrirtækið byggði á því að konunni hefði ekki verið sagt upp vegna kröfu hennar um leiðréttingu á kjörum sínum sem slíkrar heldur hefðu framsetning kröfunnar og ásakanir hennar í garð samstarfsfólks leitt til þess að trúnaður hefði brostið með óafturkræfum hætti.

Taldi uppsögnina ólögmæta

Konan kærði fyrirtækið til kærunefndar jafnréttismála í nóvember 2021.

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu í desember 2022 að konunni hefði verið sagt upp störfum vegna þess að hún krafðist leiðréttingar á kjörum sínum og að uppsögnin hefði því verið í bága við jafnréttislöggjöfina.

Nefndin taldi hins vegar ekki að konunni hefði verið mismunað við ákvörðun launa eða kaupréttar.

Úrskurðurinn var afturkallaður í september 2023 þar sem kærunefndin taldi að ekki hefði verið nægilega gætt að andmælarétti konunnar við meðferð málsins. Málið var tekið til meðferðar að nýju og komst nefndin að sömu efnislegu niðurstöðu í apríl 2024.

Konan höfðaði í kjölfarið mál gegn fyrrverandi vinnuveitanda sínum þar sem hún krafðist meðal annars ógildingar á þeim hluta úrskurðarins sem laut að ákvörðun launa og annarra kjara.

Þrír með hærri laun og tveir með lægri laun

Fyrirtækið hafnaði alfarið ásökunum konunnar um mismunun og byggði meðal annars á því að störf framkvæmdastjóranna væru ólík að inntaki og þeim fylgdi mismikil ábyrgð.

Í dómi Landsréttar kemur fram að konan hafi verið ein af sjö framkvæmdastjórum fyrirtækisins. Samkvæmt skipuriti þess var þeim öllum raðað hliðsett undir forstjóra.

Fyrir lágu upplýsingar um laun sex framkvæmdastjóra, að konunni meðtalinni. Engir tveir þeirra voru á sömu launum.

Framkvæmdastjórar fjármála-, rekstrar- og tæknisviðs, tveir karlar og ein kona, voru með hærri laun en konan. Framkvæmdastjórar ráðgjafar- og mannauðssviðs, karl og kona, voru á hinn bóginn með lægri laun en hún.

Konan var launahæst starfsmanna á markaðssviði fyrirtækisins og sú eina á því sviði sem naut kaupréttar.

Störfin ekki talin jafnverðmæt

Landsréttur féllst á niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála um að hvorki væri um sömu né jafnverðmæt störf að ræða í skilningi jafnréttislöggjafarinnar.

Það eitt að störfin hefðu verið flokkuð saman við innleiðingu jafnlaunakerfis fyrirtækisins, framkvæmdastjórarnir bæru sama starfstitil og þeim væri raðað hliðsett í skipuriti þess leiddi ekki til þess að störfin teldust jafnverðmæt. Mat á verðmæti starfa yrði að vera heildstætt.

Landsréttur benti á að samkvæmt starfslýsingum hefðu mestar kröfur verið gerðar til framkvæmdastjóra fjármála-, rekstrar- og tæknisviðs, meðal annars hvað varðaði fyrirsvar fyrirtækisins gagnvart fjárfestum, viðskiptavinum og samstarfsaðilum, stjórnun verkefna, ábyrgð á fjármálum og rekstrarafkomu fyrirtækisins auk faglegrar þekkingar og reynslu.

Konan hafði í málatilbúnaði sínum lagt áherslu á menntun sína og langa starfsreynslu hjá fyrirtækinu. Landsréttur benti meðal annars á að fleiri starfsmenn fyrirtækisins, þar á meðal aðrir framkvæmdastjórar, ættu langan starfsferil að baki.

Fengu hærri kaupréttargreiðslur

Framkvæmdastjórar fjármála-, rekstrar- og tæknisviðs fengu hærri kaupréttargreiðslur en aðrir framkvæmdastjórar.

Gegndu þeir að mati fyrirtækisins mikilvægustu störfunum innan þess og höfðu auk þess verið valdir til að vera í forsvari fyrir fyrirtækið við umfangsmikla sölumeðferð þess sem leiddi til greiðslu kaupréttarins.

Konan hafði mótmælt þessum röksemdum fyrirtækisins og bent á að kauprétturinn hefði verið ákveðinn löngu áður en viðkomandi framkvæmdastjórar voru fengnir til að kynna fyrirtækið í söluferlinu. Þá hefðu allir framkvæmdastjórarnir lagt mikið af mörkum við undirbúning sölunnar.

Í dómi Landsréttar kemur fram að kaupréttur annarra framkvæmdastjóra hafi ýmist verið hærri eða lægri en kaupréttur konunnar, óháð kyni.

Fyrirtækinu játað allnokkuð svigrúm

Landsréttur taldi ekki annað séð en að málefnalegar ástæður, sem ekki tengdust kyni, kynþætti eða þjóðernisuppruna, hefðu legið til grundvallar ákvörðun fyrirtækisins um laun og kauprétt konunnar.

„Verður að játa gagnáfrýjanda, sem er fyrirtæki á markaði, allnokkurt svigrúm í þessum efnum,“ segir í dómi Landsréttar.

Konunni hefði ekki tekist að leiða líkur að því að hún hefði notið lægri launa og lakari kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf í andstöðu við ákvæði jafnréttislöggjafarinnar.

Þá hefði hún hvorki sýnt fram á að efnislegir annmarkar væru á niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála né að málsmeðferð nefndarinnar hefði verið ábótavant við uppkvaðningu síðari úrskurðarins.

Staðfesti Landsréttur því sýknu fyrirtækisins af kröfu konunnar um ógildingu úrskurðarins að hluta og kröfum hennar um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna meintrar mismununar við ákvörðun launa og kaupréttar.

Varnir fyrirtækisins ekki teknar til skoðunar

Héraðsdómur Reykjaness hafði 5. ágúst í fyrra viðurkennt skaðabótaskyldu fyrirtækisins vegna ólögmætrar uppsagnar konunnar og dæmt henni eina milljón króna í miskabætur. Hún hafði krafist þriggja milljóna króna í miskabætur.

Héraðsdómur taldi niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála um ólögmæti uppsagnarinnar bindandi fyrir málsaðila þar sem fyrirtækið hafði ekki krafist ógildingar á þeim hluta úrskurðarins. Voru varnir fyrirtækisins varðandi lögmæti uppsagnarinnar því ekki teknar til efnislegrar skoðunar.

Landsréttur taldi hins vegar að fyrirtækinu væri heimilt að halda uppi vörnum gegn kröfum konunnar vegna uppsagnarinnar án þess að höfða sjálfstætt mál eða gagnsök til ógildingar á þeim hluta úrskurðar kærunefndarinnar.

Ómerkti Landsréttur því þann hluta héraðsdóms sem laut að viðurkenningu á skaðabótaskyldu fyrirtækisins vegna uppsagnarinnar og greiðslu miskabóta og vísaði honum aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab