Nýtt yfirlit um vistkerfi og veiðar

Hafrannsóknastofnun hefur á vef sínum birt tvö ný yfirlit um íslenska hafsvæðið þar sem er að finna upplýsingar um bæði vistkerfi sjávar og yfir…

Mynd af nýjum upplýsingasíðum Hafrannsóknastofnunar sem sýnir vistsvæði Íslandsmiða.

Mynd af nýjum upplýsingasíðum Hafrannsóknastofnunar sem sýnir vistsvæði Íslandsmiða. Kort/Hafró

Hafrannsóknastofnun hefur á sérstökum undirsíðum birt tvö ný yfirlit um íslenska hafsvæðið. Annars vegar er um að ræða yfirlit um vistkerfi sjávar og áhrifaþætti og hins vegar yfirlit um veiðar á Íslandsmiðum.

Vistkerfisyfirlitið lýsir vistkerfi hafsins við Ísland og helstu álagsþáttum á það á meðan fiskveiðiyfirlitið dregur saman þróun veiða frá miðri síðustu öld, áhrif veiða á vistkerfið og stöðu nytjastofna gagnvart stjórnunarmarkmiðum og skilgreindum gátmörkum.

Í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar segir að saman gefi þessi yfirlit heildarmynd af hafsvæðinu fyrir atvinnugreinina, stjórnvöld og almenning.

Um vistkerfi sjávar og áhrifaþætti segir að fiskveiðar séu sá álagsþáttur af mannavöldum sem valdi mestri áhættu fyrir vistkerfið við Ísland.

„Hlýnun sjávar er þegar farin að breyta útbreiðslu tegunda. Yfirlitið lýsir álagi, ástandi vistkerfisins, áhrifum loftslagsbreytinga og samfélagslegu og efnahagslegu samhengi.“

Undirsíðurnar um veiðar á Íslandsmiðum eru svo sagðar sýna að sókn hafi minnkað síðustu áratugi og að ástand flestra helstu nytjastofna sé gott, enda hafi fiskveiðistjórnun skilað minna veiðiálagi og stærri hrygningarstofnum.

Hægt er að skoða landfræðilega dreifingu afla eftir tegundum og þróun í gegn um árin. Hér má sjá nýjustu upplýsingar um grálúðuveiðar. Kort/Hafró

„Myndin er þó ekki einhlít. Nokkrir stofnar hafa minnkað mikið og staða sumra sjófugla og sela er áhyggjuefni, meðal annars vegna meðafla í netaveiðum.“

Fram kemur að fiskveiðiyfirlitið sé gagnvirk vefsíða þar sem lesendur geti skoðað þróun veiða og stöðu stofna nánar.

„Hægt er að sækja gögnin á bak við hverja mynd og vista myndirnar.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab