Dyngja tilnefnd til Dublin-verðlaunanna
Vel gert!
Menning | Bækur | Morgunblaðið | 27.11.2026 | 10:34
Skáldsagan Dyngja eftir Sigrúnu Pálsdóttur er meðal 71 bókar sem hefur verið tilnefnd til hinna alþjóðlegu Dublin-bókmenntaverðlauna 2027.
Níutíu bókasöfn víðs vegar um heim standa að tilnefningunum, þar á meðal Borgarbókasafn Reykjavíkur. Dyngja kom út á íslensku árið 2021 og var meðal annars tilnefnd til Fjöruverðlaunanna sama ár.
Hún kom út í enskri þýðingu Lyttons Smith í vor og ber þá titilinn Boudoir. Dublin-bókmenntaverðlaunin hlýtur höfundur fyrir verk sem skrifað hefur verið eða þýtt á ensku og nema verðlaunin 100 þúsund evrum eða tæpum 14 milljónum króna.
Langlisti tilnefndra bóka verður birtur 16. febrúar 2027, stuttlistinn verður kynntur 7. apríl og vinningshafinn svo tilkynntur 20. maí. Verðlaunin eru afhent á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Dublin.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗