Útreikningar United sýndu að Isak hefði verið 1,8 metrum frá boltanum
Manchester United lagði fram ítarlega útreikninga þegar félagið áfrýjaði rauða spjaldinu sem Leny Yoro fékk gegn Liverpool á sunnudag.
Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. nóvember 2026 10:30
Leny Yoro og Isak Getty Images
Manchester United lagði fram ítarlega útreikninga þegar félagið áfrýjaði rauða spjaldinu sem Leny Yoro fékk gegn Liverpool á sunnudag.
Enska knattspyrnusambandið hefur nú birt rökstuðning þriggja manna nefndar sem komst einróma að þeirri niðurstöðu að rangt hefði verið að reka Yoro af velli.
Yoro braut á Alexander Isak á áttundu mínútu leiksins en United taldi að Senne Lammens hefði orðið fyrri til boltans en sænski framherjinn.
United lagði fram gögn þar sem hraði og hlaupastefna Isak voru meðal annars tekin til skoðunar.
Niðurstaða útreikninganna var sú að Isak hefði í besta falli verið 1,8 metrum frá boltanum þegar Lammens hefði náð til hans.
Nefndin gat ekki sannreynt útreikninga United sjálfstætt og tók því gögnunum með ákveðnum fyrirvara.
Nefndarmenn voru þó allir sammála um að Isak hefði misst stjórn á boltanum með þungri snertingu og því ekki verið í augljósu marktækifæri þegar Yoro braut á honum.
Frakkinn verður því löglegur gegn Brentford á laugardag.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗