Ragnhildur um sorgina: „Hugur Naglans er hjá sjómönnum, ástvinum og fjölskyldum sem eiga um sárt að binda“
Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu h…
Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta fjallar Ragga um sorgina og hvernig hún á sér ólíkar birtingarmyndir. Mikilvægt sé að hlúa að sér og þeim sem eiga um sárt að binda.
„Í ljósi nýliðinna atburða. Hugur Naglans er hjá sjómönnum, ástvinum og fjölskyldum sem eiga um sárt að binda. Og hjá öllum þeim hugrökku hetjum sem komu að björgunarstörfum.
Sjóskaði er okkur því miður kunnugir í gegnum árhundruði í samskiptum við hafið, en vonuðumst til að þeir heyrðu sögunni til með auknum öryggisstöðlum og betri búnaði.
Þjóðin öll er því einnig í sorg og áfalli.“
Ragnhildur segir sorgina eiga sér margar birtingarmyndir og líta ekki eins út hjá öllum.
„Mörg detta í djúpt svartnætti og labba dimman dal af söknuði og depurð.
Djúpt sokkin í vonleysi og þunglyndi.
En fólk upplifir allskonar aðrar tilfinningar þegar þau syrgja, og engar tvær manneskjur upplifa sorg á sama hátt.
Sorg getur birst í algjörri afneitun
Kvíði með ofhugsunum þjóta um hausinn og jafnvel skyndilegu panikki.
Endurupplifun atburða og óþægilegar hugsanir er algengt.
Við getum verið grjótill og sjóðandi reið einn daginn yfir óréttlæti og ósanngirni heimsins að leggja þessar þungu byrðar á herðarnar.
Næsta dag getur sólin skinið og brosvipra færst á munnvikin.“
Segir Ragnhildur að það geti oft valdið samviskubiti hjá fólki að upplifa jákvæðar tilfinningar.
„Stundum er fólk algjörlega tilfinningalega dofið og finnur hvorki gleði né depurð.“
Mynd: Ragga nagli
Sorg langvarandi streituástand
Ragnhildur segir sorg vera langvarandi streituástand og líkaminn er í kortisólbaði í langan tíma. Kortisól hefur áhrif á flest kerfi líkamans.
„Það dregur úr matarlyst, truflar svefninn, og veldur hárlosi og húðvandamálum.
Kortisól slævir líka framheilann og minnkar drekann sem er skammtímaminnið, og hvorttveggja stuðlar að minnisleysi og heilaþoku.
Einföld kolvetni keyra niður kortisólið svo sum detta í át til að róa kerfið.
Það er eðlilegt að gráta. Grátur losar kortisól.
En sum fella ekki eitt einasta tár sem er líka eðlilegt.
Það er líka eðlilegt að efast um hvort eigin upplifanir séu „réttar“.“
Ragnhildur segir að einkenni sem fólk upplifir eru mikilvægir hlekkir í sorgarferlinu.
„Sorg er ekki línulegt ferli. Það er hæðir og lægðir, dalir og tindar. Missirinn og sorgin verða ekki minni með tímanum.
Heldur stækkar lífið þitt smám saman í kringum sorgina svo hún virkar minni þó hún verði alltaf til staðar.
Umkringdu þig af góðu fólki sem þú getur leitað til á erfiðum tímum. Vertu með verkfærakistu af góðum bjargráðum.
Sýndu þér samkennd, og leyfðu síðan tilfinningunum að flæða í gegnum þig en ekki sópa þeim undir teppið.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗