„Sjálfkjörinn maður ársins!“

„Það var krefjandi og líklega það mest krefjandi sem ég hef gert síðan ég byrjaði að starfa hérna,“ segir Elvar Már Sigurðsson, sigmaður hjá TF-…

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 27. nóvember 2026 10:36

Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefánsson, læknir, Jens Sigurðarson, flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson, stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki, og Jakob Frímann Magnússon. Samsett mynd/Landhelgisgæslan

„Það var krefjandi og líklega það mest krefjandi sem ég hef gert síðan ég byrjaði að starfa hérna,“ segir Elvar Már Sigurðsson, sigmaður hjá TF-Gró, í viðtali við MBL sem hefur vakið mikla athygli. Þrír sjómenn létust þegar Jökull ÞH299 sökk um 100 kílómetra undan Glettingi á miðvikudagskvöldið. 

Aðalsteinn Steinþórsson og Eggert Ellertsson eru meðal þeirra sem fórust en þegar þessi frétt er skrifuð er ekki búið að nafngreina þann þriðja sem lést. 

Elvar Már var sigmaðurinn sem sótti sextán af sautján skipverjunum við mjög erfiðar aðstæður og mun lengra úti á hafi en reglur segja til um að þyrla geti starfað ein síns liðs. Lýsti hann einnig aðstæðunum í viðtali við Kastljós í gærkvöldi. 

Jakob Frímann Magnússon er meðal þeirra sem vekja athygli á viðtalinu, hann segir í færslu á Facebook:

„Þessi ungi þriggja barna faðir lagði ásamt fleirum eigið líf og limi að veði við að bjarga lífum áhafnar Jõkuls. Okkur setur hljóð og hugur okkar er með fjõlskyldum þeirra sem ekki lifðu af. ELVAR er sannarlega maður dagsins og jafnframt sjálfkjõrinn maður ársins!,“ segir Jakob Frímann við mjög miklar undirtektir. 

Jens Þór Sigurðarson flugstjóri lýsti einnig aðstæðunum í viðtali við RÚV í gær, hann og áhöfnin vissu að enginn kæmi að sækja þau ef illa færi. Áhöfnin var samt 150% tilbúin í verkefnið. Sigmennirnir hafi sett sig í mikla hættu og það sé ekki sjálfgefið að þeir hætti sér í slíkar aðstæður.

„Við erum ofsalega þakklát að það komu allir heim. Auðvitað hefðum við viljað koma með alla heila heim. En maður er mest þakklátur fyrir það að við komum með alla heim og að vera ekki í leit,“ sagði Jens.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab