Sakfelldur í þrettánda sinn og fær ellefu mánuði

Maðurinn framdi brotið aðeins um mánuði eftir að hann hafði verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir sams konar brot.

Landsréttur tók fram að þótt maðurinn hefði leitast við að taka sig á yrði ekki fram hjá því horft að hann hefði framið brotið aðeins um mánuði eftir að hann var sakfelldur í tólfta sinn fyrir akstur sviptur ökurétti. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur staðfesti í gær ellefu mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm yfir manni sem sakfelldur var í þrettánda sinn fyrir að aka sviptur ökurétti. Maðurinn framdi brotið aðeins um mánuði eftir að hann hafði verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir sams konar brot.

Manninum ber að greiða samtals rúmlega 912 þúsund krónur í málsvarnarlaun í héraði og áfrýjunarkostnað.

Maðurinn viðurkenndi að hafa ekið sviptur ökurétti en taldi þá dómvenju að þyngja refsingu við hvert endurtekið brot af þessu tagi meðal annars brjóta gegn stjórnarskránni og mannréttindasáttmála Evrópu.

Fyrir héraðsdómi krafðist maðurinn þess að honum yrði ekki gerð þyngri refsing en 120 þúsund króna sekt en fyrir Landsrétti krafðist hann þess að refsing hans yrði milduð.

Braut af sér á ný mánuði eftir sakfellingu

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti um Súðarvog við Kleppsmýrarveg í Reykjavík 7. mars í fyrra.

Þann 5. febrúar sama ár hafði hann verið sakfelldur í tólfta sinn fyrir akstur sviptur ökurétti.

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2011 og hefur hann ítrekað verið dæmdur til fangelsisvistar fyrir akstur sviptur ökurétti, í sumum tilvikum einnig fyrir önnur brot.

Árið 2021 var hann dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti, í átta mánaða fangelsi árið 2023 og níu mánaða fangelsi árið 2024.

Taldi dómstóla ganga inn á verksvið löggjafans

Maðurinn byggði vörn sína á því að ekki væri í umferðarlögum að finna sérstaka heimild til að þyngja refsingu vegna endurtekinna brota með þeim hætti sem venja hefði skapast fyrir í dómaframkvæmd.

Taldi hann dómstóla ganga inn á verksvið löggjafans með refsiákvörðunum sínum. Þá væru kröfur um skýrleika refsiheimilda ekki uppfylltar þar sem almennur borgari gæti ekki lesið það úr lögum að akstur sviptur ökurétti í þrettánda sinn varðaði ellefu mánaða fangelsi.

Vísaði maðurinn í því sambandi meðal annars til 69. gr. stjórnarskrárinnar og 7. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Refsingin innan þess ramma sem lögin mæla fyrir um

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði röksemdum mannsins og vísaði meðal annars til þess að akstur sviptur ökurétti varðaði sektum eða fangelsi allt að tveimur árum samkvæmt umferðarlögum.

Dómurum væri falið að meta hæfilega refsingu hverju sinni innan þess refsiramma sem lögin mæltu fyrir um.

Dómstólar hefðu talið sér heimilt að líta til sakaferils manna við ákvörðun refsingar vegna endurtekinna brota þótt ekki væri að finna sérstaka heimild um ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar í umferðarlögum.

Héraðsdómur taldi dómvenjuna hvorki brjóta gegn lögmætisreglu stjórnarskrárinnar né fyrrgreindu ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Löng og fastmótuð dómvenja

Í dómi Landsréttar kemur fram að þótt ekki sé mælt fyrir um ítrekunaráhrif fyrri refsiákvarðana í umferðarlögum sé fyrir því löng og fastmótuð dómvenja að sá sem fundinn er sekur um að aka sviptur ökurétti í þriðja sinn skuli sæta fangelsi í 30 daga.

Fyrir hvert endurtekið brot eftir það þyngist fangelsisrefsingin um 30 daga, að uppfylltum skilyrðum almennra hegningarlaga um ítrekunaráhrif.

Þá megi ráða af dómaframkvæmd að refsing í slíkum málum sé alla jafna óskilorðsbundin þótt undantekningar séu frá því.

Hefur verið í endurhæfingu í tæp tvö ár

Maðurinn lagði fram vottorð fyrir Landsrétti, dagsett 5. nóvember, þar sem fram kom að hann hefði verið í endurhæfingu í tæp tvö ár og að miklar breytingar hefðu orðið á viðhorfum hans.

Hann tæki þátt í félagsstörfum og hefði unnið sjálfboðaliðastörf auk þess sem hann ynni að því að ná betri tökum á fjölskylduaðstæðum sínum.

Landsréttur tók fram að þótt maðurinn hefði leitast við að taka sig á yrði ekki fram hjá því horft að hann hefði framið brotið aðeins um mánuði eftir að hann var sakfelldur í tólfta sinn fyrir akstur sviptur ökurétti.

Ekkert hefði komið fram í málinu sem réttlætt gæti að vikið yrði frá fyrrgreindri dómvenju við ákvörðun refsingar mannsins.

Var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. apríl um ellefu mánaða óskilorðsbundið fangelsi því staðfestur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab