Um 27 milljónum króna minna í Trevi-gosbrunninn
Nýtt aðgangsgjald gæti skýrt samdráttinn að hluta.
Ferðamenn við Trevi-gosbrunninn í Róm 2. febrúar, daginn sem gjaldtaka hófst. Að mati hjálparsamtakanna Caritas gæti tveggja evra gjaldið átt þátt í því að færri smápeningar rata nú í brunninn. AFP/Andreas Solaro
Ferðamenn köstuðu minna fé í Trevi-gosbrunninn í Róm fyrstu níu mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Hjálparsamtökin Caritas í Róm, sem safna myntinni úr brunninum, áætla að munurinn nemi tæpum 200 þúsund evrum, eða um 27 milljónum króna.
Tölurnar ná aðeins til evra en í árslok kemur í ljós hversu mikið safnaðist í öðrum gjaldmiðlum.
Lengi hefur tíðkast að ferðamenn kasti smápeningi yfir öxlina í brunninn í þeirri von að eiga afturkvæmt til Rómar. Féð sem þannig safnast nota samtökin til að sjá fólki fyrir mat, læknisþjónustu og félagslegri aðstoð.
Kostar nú að ganga niður að brunninum
Giustino Trincia, framkvæmdastjóri Caritas í Róm, segir í samtali við fjölmiðla ytra að skýringin á samdrættinum kunni að hluta að liggja í breyttu aðgengi að brunninum.
Í febrúar tóku borgaryfirvöld upp aðgangsgjald til að draga úr þrengslum við brunninn. Þeir sem búa utan Rómar greiða nú tvær evrur, um 275 krónur, fyrir að ganga niður að honum frá klukkan níu á morgnana til tíu á kvöldin. Eftir það er aðgangur ókeypis og gestir geta sem fyrr virt brunninn fyrir sér af torginu fyrir ofan án þess að greiða fyrir.
Að sögn borgaryfirvalda skilaði aðgangsgjaldið rúmlega 435 þúsund evrum í borgarsjóð fyrsta mánuðinn, jafnvirði um 60 milljóna króna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

