Úrið sem á rætur að rekja til sögufrægs leiðangurs á Grænlandi
Á ferð sinni um Grænland á dögunum bar Róbert F. Michelsen armbandsúr sem á sér sérstaka tengingu við Grænland og sögu landkönnunar.
Róbert F. Michelsen, úrsmiður og framkvæmdastjóri Michelsen 1909, varði nýverið tólf dögum á seglskútu við strendur Grænlands. Ljósmynd/Joe Shutter
Tólf dagar á seglskútu við strendur Grænlands, fjarri netsambandi og amstri hversdagsins. Þannig varði Róbert F. Michelsen, úrsmiður og framkvæmdastjóri Michelsen 1909, dögunum á ferð sinni um austurströnd landsins. Á úlnliðnum bar hann armbandsúr sem á sér sérstaka tengingu við Grænland og sögu landkönnunar.
Á ferð sinni um Grænland bar Róbert armbandsúr sem á sér sérstaka tengingu við Grænland og sögu landkönnunar. LJósmynd/Joe Shutter
Ferðin gaf Róberti færi á að sjá stórbrotið landslag Austur-Grænlands frá sjó. Siglt var um Scoresby-sund og firðina á austurströndinni um borð í A/S Linden, seglskútu í anda skipa frá fyrri hluta síðustu aldar.
Ferðin gaf Róberti færi á að sjá stórbrotið landslag Austur-Grænlands frá sjó, um borð í seglskútu í anda skipa frá fyrri hluta síðustu aldar. Ljósmynd/Joe Shutter
Kyrrðin er eitt af því sem Róberti er minnisstæðast úr ferðinni. Án netsambands og þeirra truflana sem fylgja venjulegum degi gafst honum tími til að horfa í kringum sig, njóta augnabliksins og finna fyrir nálægðinni við náttúruna.
Úrið sem Róbert tók með sér var af gerðinni TUDOR Ranger. Saga þess tengist annars konar ferð til Grænlands, sem hófst rúmum sjö áratugum fyrr.
Úrið sem Róbert tók með sér var af gerðinni TUDOR Ranger. Saga þess tengist annars konar ferð til Grænlands, sem hófst rúmum sjö áratugum fyrr. Ljósmynd/Joe Shutter
Þrjátíu armbandsúr á Grænlandsjökli
Árið 1952 hélt hópur breskra vísindamanna í tveggja ára rannsóknarleiðangur á Grænlandsjökul. Með í för voru 30 armbandsúr af gerðinni TUDOR Oyster Prince.
Úraframleiðandinn lét leiðangursmenn fá úrin til að reyna á endingu þeirra og áreiðanleika við krefjandi aðstæður á norðurslóðum.
Árið 1952 hélt hópur breskra vísindamanna í tveggja ára rannsóknarleiðangur á Grænlandsjökul með 30 TUDOR úr til að reyna á endingu þeirra og áreiðanleika við krefjandi aðstæður. Ljósmynd/Joe Shutter
Leiðangurinn, sem bar heitið British North Greenland Expedition, varð mikilvægur kafli í sögu TUDOR og veitti síðar innblástur að Ranger-línunni. Hugmyndin að baki henni var að smíða einföld og auðlesin úr sem hægt væri að treysta á við erfiðar aðstæður. Verðið átti jafnframt að vera á færi sem flestra.
Rúmum sjö áratugum síðar lá leið eins þessara úra til Grænlands. Að þessu sinni var það á úlnlið íslensks úrsmiðs á seglskútu við austurströndina.
Rúmum sjö áratugum síðar lá leið eins þessara úra til Grænlands. Að þessu sinni var það á úlnlið íslensks úrsmiðs á seglskútu við austurströndina. Ljósmynd/Joe Shutter
Auðlesið úr með látlausri hönnun
Skýrir tölustafir og áberandi vísar einkenna skífu TUDOR Ranger. Það er auðvelt að lesa á úrið í fljótu bragði og látlaus hönnunin gefur því fágað yfirbragð. Úrið er jafnframt smíðað með það í huga að þola krefjandi aðstæður.
Í úrinu er sjálftrekkt svissneskt gangverk frá TUDOR með gangnákvæmnisvottun. Gangforðinn er um 70 klukkustundir og úrið er vatnsvarið niður á 100 metra dýpi. Það fæst í tveimur stærðum, 36 og 39 mm, með nælonól eða stálkeðju.
Ranger er hannað með ferðalög og útivist í huga. Einföld skífan og látlaust yfirbragðið gera það jafnframt að verkum að úrið fer vel við hversdagsklæðnað og á líka við þegar tilefnið er formlegra.
Skýrir tölustafir og áberandi vísar einkenna skífu TUDOR Ranger. Það er auðvelt að lesa á úrið í fljótu bragði og látlaus hönnunin gefur því fágað yfirbragð. Ljósmynd/Joe Shutter
Þegar tíminn fær að líða á öðrum hraða
Ljósmyndarinn Joe Shutter var með Róberti í för og myndaði bæði lífið um borð og landslagið á leiðinni. Myndir hans gefa innsýn í ferðina og þá kyrrð sem Róbert fann á siglingunni, þegar tíminn virtist stundum standa í stað.
Ljósmyndarinn Joe Shutter var með Róberti í för og myndaði bæði lífið um borð og landslagið á leiðinni. Samsett mynd
Hjá TUDOR er slagorðið Born to Dare notað um þá afstöðu að sýna sjálfstæði, ögra hefðum og þora að stíga út fyrir þægindarammann. Tólf dagar á seglskútu við Grænland, fjarri netsambandi og venjubundnum takti dagsins, eru ein leið til þess.
TUDOR Ranger er til sýnis og sölu í verslun Michelsen 1909 á Hafnartorgi þar sem hægt er að skoða úrið og máta það.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







