Ingibjörg Dögg komin í 12 mánaða veikindaleyfi
Aðalsteinn Kjartansson er nýr ritstjóri Heimildarinnar eftir að Ingibjörg fór í veikindaleyfi.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hefur stigið til hliðar sem ritstjóri Heimildarinnar vegna veikinda. Aðalsteinn Kjartansson hefur tekið við ritstjórastarfinu á meðan Ingibjörg er í 12 mánaða veikindaleyfi. Sagt er frá þessu í Heimildinni í dag.
Aðalsteinn hefur komið víða við í blaðamennsku en hann hóf feril sinn á DV en síðan þá hefur hann starfað á Stundinni, Rúv., Vísi.is og Reykjavík Media.
Ást á Stundinni
Það vakti athygli þegar í ljós kom að Ingibjörg Dögg og Jón Trausti Reynisson væru kærustupar en þau höfðu unnið saman í mörg ár áður en ástin kviknaði. Smartland sagði svo frá því að þau hefðu keypt sér raðhús á Seltjarnarnesi.
Smartland óskar Ingibjörgu Dögg góðs gengis!
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
