Braut lyfjareglur og missir af HM

Laura Freigang, miðjumaður þýska landsliðsins og fyrirliði Eintracht Frankfurt, missir af heimsmeistaramótinu í fótbolta í Brasilíu næsta sumar …

Laura Freigang verður ekki með á HM í Brasilíu.

Laura Freigang verður ekki með á HM í Brasilíu. AFP

Laura Freigang, miðjumaður þýska landsliðsins og fyrirliði Eintracht Frankfurt, missir af heimsmeistaramótinu í fótbolta í Brasilíu næsta sumar eftir að hafa verið dæmd í 16 mánaða bann fyrir brot á lyfjaeftirlitsreglum um tilkynningu dvalarstaðar.

Þýska knattspyrnusambandið greindi frá því í gær að hin 28 ára gamla Freigang hefði þrisvar sinnum brugðist tilkynningarskyldu og/eða misst af lyfjaprófi á tímabilinu frá mars 2025 til febrúar 2026. Bannið gildir afturvirkt frá júní og má hún því snúa aftur 8. október 2027.

„Það skiptir mig máli að ítreka enn og aftur að ég var aldrei grunuð um lyfjamisnotkun,“ skrifaði Freigang á Instagram. „Þótt ég hafi fallist á sátt þýðir það ekki að ég sé sammála öllum þáttum matsins á máli mínu.“

„Undanfarnir mánuðir hafa verið mér afar erfiðir,“ bætti hún við. „Frekari málarekstur hefði haft í för með sér mikla fjárhagslega, andlega og tilfinningalega byrði.“

Freigang, sem hefur leikið 45 landsleiki fyrir Þýskaland, baðst afsökunar gagnvart félagi sínu, liðsfélögum og stuðningsmönnum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab