Birta skilaboð milli Jóhannesar og Þorsteins Más – „Legg mikla aherslu a ad menn haldi kjafti“
Heimildin birtir í dag fjölda skilaboða sem fóru á milli Jóhannesar Stefánssonar, þáverandi framkvæmdastjóra Namibíuútgerðar Samherja, og Þorste…
Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. nóvember 2026 10:00
Jóhannes Stefánsson og Þorsteinn Már Baldvinsson. Samsett mynd/Skjáskot úr Kveik/Skjáskot af Youtube
Heimildin birtir í dag fjölda skilaboða sem fóru á milli Jóhannesar Stefánssonar, þáverandi framkvæmdastjóra Namibíuútgerðar Samherja, og Þorsteins Más Baldvinssonar, þáverandi forstjóra Samherja. Alls hefur Heimildin undir höndum 1.468 skilaboð milli þeirra á tímabilinu 28. mars 2013 til 13. ágúst 2016. Jóhannes steig fyrst fram í þætti Kveiks í nóvember 2019 og lýsti meintum mútugreiðslum til namibískra ráðamanna til að tryggja aðgang að kvóta í landinu.
Samherji hefur hafnað ásökunum og gaf út myndbönd fyrir nokkrum árum þar sem meðal annars var hafnað að fyrirtækið hafi stundað arðrán í Namibíu og að fyrirtækið hafi greitt markaðsverð fyrir kvótann.
Þorsteinn Már er nú með réttarstöðu sakbornings í málinu. Rannsókn héraðssaksóknara á málinu lauk í júlí 2025 og stendur nú enn yfir mat á því hvort gefa eigi út ákærur í málinu. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagði við Morgunblaðið nýverið að hann gæti ekki útlistað ferlið nákvæmlega en það væri unnið í því stöðugt, hann vildi ekki gefa upp hvenær niðurstöðu væri að vænta.
„Málið er að mörgu leyti einstakt, en ég get ekki farið í nein smáatriði. Málið er til meðferðar og það tekur því miður svolítinn tíma að vinna úr þessu,“ sagði Ólafur.
„Eg hef ekkisagt neitt vid hann“
Fjallað var um tilvist skilaboðanna í Heimildinni í október 2024 og sagði þá að tæknimönnum á vegum héraðssaksóknara hefði tekist að endurheimta þau og að skilaboðin gefi aðra mynd af samskiptum þeirra en Þorsteinn Már hafi lýst.
Í blaðinu í dag er farið yfir nokkur þessara skilaboða og er sagt að þau styðji við frásögn Jóhannesar. „Ekki er að sjá í skilaboðunum að mútur hafi verið ræddar berum orðum, en samskiptin draga upp fyllri mynd en áður hefur legið fyrir. Jóhannes sagði Þorsteini frá drögum að kvótaúthlutun, frá fundum með ráðherra og leitaði til hans þegar taka þurfti afstöðu til greiðsluskilmála,“ segir í umfjölluninni. Er þar einnig lýst hvernig rannsókn Seðlabankans hafi orðið til þess að passað var upp á að hafa samskipti ekki í tölvupóstum.
Er svo vitnað í eitt myndband Samherja þar sem Þorsteinn Már lýsti að mistökin hafi verið að hafa ekki betra eftirlit með rekstrinum í Namibíu og að stjórnendum Samherja hafi alltaf verið sýnt traust. Í umfjölluninni segir að þau ummæli passi ekki vel við samskiptin í kringum skilaboðasendingar um undirbúning á skipinu Alinu til Namibíu haustið 2014.
Þar segir að Jóhannes hafi lagt ríka áherslu á að upplýsingar spyrðust ekki út. „thad eru nokkrir tharna sem ad leka miklum uppl og thad er ahyggjuefni. heinaste hefur nad ad haldast alveg frir hvad thetta vardar og legg mikla aherslu a ad menn haldi kjafti“, skrifaði Jóhannes í skilaboð til Þorsteins 13. nóvember 2014.
Fjórum dögum síðar skrifaði hann svo til Þorsteins: „Saell, hafdu i huga ad eg hleypi Egil ekki i uppl um uppsetningu okkar verkefnis i angola og med hverjum vid vinnum.“ Vísar hann þar til samstarfsmanns Jóhannesar í Namibíu. „Eina sem ad faer ad vita er ad vid vinnum med folki tengt radherranum en ekki beint med radherranum.“
Tæpum hálftíma síðar svaraði Þorsteinn: „Eg hef ekkisagt neitt vid hann.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗