Vilhjálmur minnir á það sem gerðist 2014 - „Hefði svo sannarlega dugað til kaupa á fjórum björgunarþyrlum“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sendir aðstandendum skipverjanna þriggja sem fórust þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk…
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sendir aðstandendum skipverjanna þriggja sem fórust þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk á miðvikudaginn innilegar samúðarkveðjur og bendir á að hefði ríkisvaldið haldið til haga þeim sparnaði sem hlaust af niðurfellingum sjómannaafsláttarins fyrir rúmum áratug þá hefði verið hægt að kaupa fjórðu þyrluna fyrir Landhelgisgæsluna.
Umræða um þyrlukost Landhelgisgæslunnar hefur verið áberandi eftir harmleikinn. Sem stendur eru þyrlurnar þrjár en svo óheppilega vill til að tvær þeirra hafa verið úr rekstri síðan í sumar vegna viðhalds og bilana. Lengi hefur verið kallað eftir fjórðu þyrlunni með fasta starfsstöð á Akureyri. Forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Kr. Lárusson, hefur bent á að með fjórum þyrlum gæti Gæslan haft tvær þyrlur tilbúnar til útkalls 95% tímans, en í dag sé hlutfallið aðeins 65%.
Vilhjálmur skrifar á Facebook að björgunarþyrlur Gæslunnar séu mikilvægasta öryggislína sjómanna.
„Ég sendi fjölskyldum, ástvinum og skipsfélögum þeirra þriggja sjómanna sem fórust þegar Jökull ÞH sökk mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hugur minn er líka hjá þeim 14 skipverjum sem var bjargað og fjölskyldum þeirra.
Ég vil þakka áhöfn björgunarþyrlunnar og öllu starfsfólki Landhelgisgæslunnar af heilum hug fyrir það mikla afrek sem unnið var við gríðarlega erfiðar aðstæður. Björgunarsveitir Landsbjargar, áhafnir skipanna sem brugðust við, heilbrigðisstarfsfólk og allir aðrir viðbragðsaðilar eiga sömuleiðis miklar þakkir skildar.“
Hann minnir á að árið 2014 var sjómannaafslátturinn felldur niður, afsláttur sem endurspeglaði þá hættu sem sjómenn leggja sig í fyrir þjóðarbúskapinn. Hefði sá sparnaður sem hlaust af niðurfellingunni verið nýttur til að tryggja öryggi sjómanna þá hefði Gæslan getað keypt fjórðu þyrluna.
„Þegar sagt er að ríkið hafi ekki efni á nýrri björgunarþyrlu er rétt að rifja upp að Alþingi felldi sjómannaafsláttinn niður árið 2014. Afslátturinn var meðal annars viðurkenning á erfiðum, hættulegum og þjóðhagslega mikilvægum störfum sjómanna og löngum fjarvistum frá fjölskyldu.
Miðað við verðgildi fulls afsláttar fyrir skerðingu nemur áætlaður sparnaður ríkisins um 34 milljörðum króna frá 2014 á verðlagi dagsins í dag. Það hefði svo sannarlega dugað til kaupa á fjórum björgunarþyrlum á fimm milljarða hverri. Hvers vegna hefur Alþingi ekki varið hluta af því sem ríkið sparaði á kostnað sjómanna til að tryggja öryggi þeirra enn frekar?“
Vilhjálmur segir þjóðina nú kalla eftir fjórðu þyrlunni og nú þurfi Alþingi að hlusta og forgangsraða í samræmi.
„Ég tel það þjóðarvilja að stjórnvöld kaupi fjórðu björgunarþyrluna. Alþingi á að hlusta á þjóðina og forgangsraða í samræmi við það. Tryggjum fé til kaupanna, fastrar starfsstöðvar á landsbyggðinni, til dæmis á Akureyri, og til mönnunar og viðhalds. Markmiðið á að vera skýrt: Tvær björgunarþyrlur með fullmönnuðum áhöfnum séu ávallt tilbúnar til útkalls.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lofaði því í gær að fjórða þyrlan kæmi áður en kjörtímabilið er á enda. Verði kaupunum nú flýtt eins og hægt er á næstu vikum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗