Hjartaaðgerð dótturinnar tók á Daníel
Daníel Leó Grétarsson, landsliðsmaður í fótbolta, hlakkar til að búa aftur með fjölskyldu sinni eftir að ung dóttir hans gekkst undir hjartaaðge…
Daníel Leó Grétarsson, landsliðsmaður í fótbolta, hlakkar til að búa aftur með fjölskyldu sinni eftir að ung dóttir hans gekkst undir hjartaaðgerð. Þau eru nú á Íslandi og munu flytja til hans í Árósum eftir jól.
„Ég hlakka virkilega til að fá þau svo ég geti aftur verið góður faðir. Því það er fyrst og fremst það sem ég er,“ sagði hann eftir 4:1-sigur á Brann í Sambandsdeildinni í gær, samkvæmt Bold.
„Þegar dóttir manns gengur í gegnum eitthvað sem er gríðarlegt álag bæði líkamlega og andlega þá tekur það mikið á. Það tekur sinn toll. En ég er bara feginn að allir hafi það gott og séu að jafna sig.“
Hinn 31 árs gamli varnarmaður skoraði sitt fyrsta mark fyrir AGF þegar hann sneri aftur eftir mánaðarfjarveru. „Að koma okkur í 2:0 var mín leið til að segja takk,“ sagði hann um stuðning liðsfélaga sinna.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗