Gunnar Smári rifjar upp sáran fjölskylduharm: „Þá var eins og bölvun hefði lagst yfir ættina“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður rifjar upp sárar minningar úr fjölskyldu sinni í kjölfar sjóslyssins við Austurland þar sem þrír skipverjar…
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður rifjar upp sárar minningar úr fjölskyldu sinni í kjölfar sjóslyssins við Austurland þar sem þrír skipverjar á Jökli létust.
Í færslu á Facebook í morgun lýsir Gunnar Smári því hvernig sjóslys hafa markað líf fjölskyldu hans, líkt og svo margra annarra íslenskra fjölskyldna.
Elsti bróðir Gunnars Smára er skírður eftir ungum sjómanni sem fórst og vitjaði móður hans sjóblautur í draumi. Þar spurði hann hvort litla barnið mætti bera nafn sitt.
Síðar missti móðir Gunnars Smára bróður sinn sem lést í höndum björgunarmanna eftir að hafa verið bjargað úr sjó. Næsti bróðir Gunnars Smára var skírður í höfuðið á honum.
„Í barnsminni mínu er þessi frændi minn fagur, eins og af öðrum heimi, svo traustur og hlýr, svo glaður. Mamma saknaði hans alla tíð, brosti og grét þegar hún minntist hans.“
En áföllin voru fleiri.
„Svo fórst líka sonur hans á sjó og þá var eins og bölvun hefði lagst yfir ættina. Hvað er hægt að bera mikinn harm án þess að brotna?“
Gunnar Smári segir fjölmarga Íslendinga bera í beinum sér harm yfir því sem hafið hefur tekið. Þeir finni nú til með þeim sem misst hafa son, maka, föður, frænda, félaga eða vin.
„Ég votta öllum sem nú syrgja samúð mína og vona að sorgin meiði þau ekki um of. Það er engin byrði eins lamandi og sorgin.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗