„Fyrr í mánuðinum greindist ég með krabbamein“
Rán Flygenring, rithöfundur og teiknari, segir að nýlega hafi hún greinst með krabbamein. Það sé ástæða þess að hún er ekki á ferð og flugi að k…
Rán Flygenring, rithöfundur og teiknari, segir að nýlega hafi hún greinst með krabbamein. Það sé ástæða þess að hún er ekki á ferð og flugi að kynna nýja bók sína, Bananasafnið.
„Undir venjulegum kringumstæðum væri ég út um allar trissur núna að lesa upp úr Bananasafninu, árita bækur, mæta í útgáfuboð og bulla í viðtölum. En skjótt skipast veður í lofti. Fyrr í mánuðinum greindist ég með krabbamein. Þetta er Hodgkin's eitilfrumukrabbamein, sem svarar almennt vel meðferð, og það er strax byrjað að lækna mig af þessum fjára – sjá myndir. Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar, takk, og ég veit ekki alveg hvað ég á að segja meira núna, nema bara það. Takk.“
Með færslu sinni birtir Rán myndasögu sem lýsir ferlinu og lyfjunum sem hún er að taka. Þar kemur fram að Rán finnist hún ekki veik.
Rán hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Tjörnina og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Eldgos.
Bananar eru mest seldu ávextir á Íslandi, en Pálmi veit álíka mikið um banana og flest okkar – sama sem ekki neitt. Hann er nýfluttur í blokk þar sem hann þekkir engan og honum leiðist óskaplega. Þegar foreldrar hans gefa honum framandi túkanfugl hressist Pálmi við, allt þar til fuglinn sleppur út í hrímkalt skammdegið.
Í leit sinni að túkaninum berst Pálma óvæntur liðsauki, Fífa, og saman leggja þau í ævintýrlegan björgunarleiðangur sem leiðir þau undir snjóinn og inn í stórmerkilegt bananasafn. Vissir þú að banani er ber? Að það eru til bláir bananar og rauðir? Að apar eru í raun hrifnari af vínberjum en banönum? En það er eitthvað bogið við þessa undirheima …
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗