Seldi allar eigur sínar og flutti um borð í skemmtiferðaskip – Svona hefur hún efni á því

Í dag er Svartur föstudagur og tilboð í verslunum um allan heim. Fólk keppist við að kaupa jólagjafir og einhverja hluti á eigin óskalista.

Fókus

Föstudaginn 27. nóvember 2026 09:30

Myndir/Instagram @libbyrome

Í dag er Svartur föstudagur og tilboð í verslunum um allan heim. Fólk keppist við að kaupa jólagjafir og einhverja hluti á eigin óskalista. En það er ein kona sem mun sitja hjá þar sem allar eigur hennar komast fyrir í bakpoka.

Libby Rome er 52 ára kanadísk kona og býr um borð í skemmtiferðaskipi ásamt eiginmanni sínum, Dan, 60 ára.

Hún hefur lifað svokölluðum „flökkulífsstíl“ undanfarin 16 ár. Árið 2010 losuðu hjónin sig við nær allar eigur sínar og byrjuðu að ferðast um heiminn. Þau stunduðu fjarvinnu, Libby sem tækniráðgjafi. 

Fyrir nokkrum árum ákváðu þau að búa alfarið á mismunandi skemmtiferðaskipum og hafa verið að njóta þar saman síðan. Libby sagði nýlega upp vinnunni og verja þau dögunum saman í að ganga um skipið, spila og mála.

Hjónin hafa verið saman í 27 ár og segir Libby að heimili hennar sé ekki þar sem eigur hennar og dauðir hlutir séu, heldur þar sem Dan er.

„Ég elska þetta, þetta er draumur. Engin húsverk eða erindagjörðir, og algjörlega stresslaust ferðalag!“ segir Libby við Daily Mail.

   Libby ákvað að kýla á þetta þegar hún var að flytja frá Texas til Kanada. „Það kostaði heilmikinn pening að flytja alla kassana og ég áttaði mig á því hvað ég væri búin að sanka að mér miklu dóti í gegnum ævina. Mér leist ekkert á neysluhyggjuna mína og vítahringinn sem ég var komin í,“ segir hún. Nú eru liðin sextán ár og sér Libby ekki eftir neinu. Hún viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt að losa sig við allt, erfiðast hafi verið úrklippubækur. „Ég hafði eytt svo miklum tíma í að föndra þær, en frelsið er þess virði. Ég sé ekki eftir neinu.“ Allar eigur hennar passa í bakpoka. „Ég á tvenn pör af buxum og jógaleggings, nokkra boli og sokkapör og svo framvegis. Ég á bara það sem ég þarf og ekkert meira en það.“

Libby er virk á Instagram og leyfir áhugasömum að fylgjast með lífi þeirra hjóna. Í myndbandinu hér að neðan svarar hún algengustu spurningunni sem hún fær: Hvernig hafa þau efni á þessu?

Meðal þess sem hún nefnir er fjarvinna, fara vel með peningana og lifa spart. Horfðu á það hér að neðan.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab