Unnur og Björn klifu Kilimanjaro: „Maður mætir sjálfum sér. Erfiðar, efast, upplifir, hræðist“

Leikara- og leikstjórahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors fóru í sannkallaða ævintýraferð til Tansaníu.Unnur hefur sagt frá ferðalagin…

Ragna Gestsdóttir

Ragna Gestsdóttir

Föstudaginn 27. nóvember 2026 09:42

Björn og Unnur Ösp. Mynd: Facebook.

Leikara- og leikstjórahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors fóru í sannkallaða ævintýraferð til Tansaníu.

Unnur hefur sagt frá ferðalaginu í máli og myndum á Facebook og segir hún ferðina draum sem hafi ræst.

Á mánudag birti hún myndir af sér með villtum dýrum þar sem hún faðmar meðal annars gíraffa.

„Draumar geta ræst. Mig hefur dreymt um að komast í návígi við villt dýr síðan ég var fimm ára. Þetta var þó framar öllum mínum vonum. Mögulega einn besti dagur lífs míns. Hitti Nölu (heitir það í alvörunni!) Sver það, það var eitthvað á milli okkar, eins og sést.“

Kilimanjaro umbreytandi lífsreynsla

Síðan var komið að því að reyna við hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro. Björn náði toppnum, en Unnur veiktist af hæðaveiki og þurfti frá að hverfa í 4600 metra hæð. Kilimanjaro rís 4.900 metra frá rótum sínum upp að toppi á Uhuru Peak í 5.895 metra hæð. 

„Framandi, ævintýralegt, spennandi, stórkostlegt, áskorun sem sprengir alla þægindaramma lífsins. Ég náði 4600m hæð en veiktist þá af hæðaveiki og þurfti að fara niður. Bjössi náði toppnum. Ber mikla virðingu fyrir fjallafólki eftir þetta. Meðal annars voru þarna með okkur nokkrir Everestfarar.

Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Á fjalli kynnist maður kjarna fólks, í þunnu loftinu. Mætum náttúrunni saman. Allar varnir bresta. Það er stutt á milli okkar. Maður mætir sjálfum sér. Erfiðar, efast, upplifir, hræðist.

En þegar himnarnir opnast á kvöldin, stjörnurnar brjótast fram og aparnir syngja í regnskógunum hoppandi yfir tjöldunum okkar- er þetta allt þess virði. Það var soldið grátið, meira hlegið.

Stolt, þakklát, meyr, þreytt, hissa, allt önnur.

Umbreytandi lífsreynsla með yndislegu fólki.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab