Minnist föður síns sem lést í sjóslysinu
Aðalsteinn Steinþórsson var einn þeirra skipverja sem fórust þegar Jökull SH sökk austur af landinu í fyrradag. Agnes Aðalsteinsdóttir dóttir ha…
Aðalsteinn Steinþórsson var einn þeirra skipverja sem fórust þegar Jökull SH sökk austur af landinu í fyrradag. Agnes Aðalsteinsdóttir dóttir hans minnist föður síns í færslu sem hún skrifar á Facebook. Aðalsteinn var 59 ára gamall.
„Pabbi minn var hörkutól. Villimaður með stórt hjarta og maður sem lét ekki mikið stoppa sig. Hann var ein stærsta lífsgjöf sem ég og börnin mín höfum fengið. Maðurinn sem elskaði mig, studdi mig og stóð við bakið á mér í einu og öllu. Ekki bara þegar lífið var auðvelt heldur líka þegar það reyndi hvað mest á mig.“
Hún segir að faðir sinn hafi alltaf verið til staðar.
„Hann tók á móti börnunum mínum með ást og var þeim stuðningur á sinn hátt. Hann gaf okkur öryggi, hlýju og minningar sem enginn getur nokkurn tímann tekið frá okkur. Og nú er hann farinn. Allt of snöggt. Í sjóslysi sem breytti lífi okkar á einu augnabliki. Það er svo ósanngjarnt að maður sem hafði svona stórt hlutverk í lífi okkar skuli vera tekinn frá okkur svona skyndilega.
Takk fyrir að vera pabbi minn
Ég veit ekki enn hvernig lífið verður án þín, pabbi. Ég veit bara að það verður aldrei eins. En ég mun bera þig með mér. Í hjartanu, í börnunum mínum, í sögunum sem ég segi þeim og í öllu því góða sem þú skildir eftir í okkur.
Takk fyrir að vera pabbi minn. Takk fyrir að elska mig. Takk fyrir að gefast aldrei upp á mér. Þú varst og verður alltaf einn af mínum stærstu fjársjóðum. Og ef ég gæti fengið eina mínútu í viðbót með þér myndi ég ekki biðja um neitt annað en að fá að faðma þig, segja þér hversu mikið þú skiptir mig máli og þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗