Beckham vill milljarða í bætur eftir óvænta uppgötvun
Fyrirtæki Davids Beckhams krefst að minnsta kosti 41 milljónar dollara í skaðabætur frá ilmvatnsframleiðandanum Coty og heldur því fram að óheim…
Fyrirtæki Davids Beckhams krefst að minnsta kosti 41 milljónar dollara í skaðabætur frá ilmvatnsframleiðandanum Coty og heldur því fram að óheimil sala í lágvöruverðsverslunum og á bensínstöðvum hafi skaðað ímynd hans.
Samkvæmt The Athletic lýsir DB Ventures í málsókn sinni „áfalli og vonbrigðum“ Beckhams eftir að hann rakst á ilmvötnin sín í „útsölukörfu inni á bensínstöð“.
„Hvernig gat þetta mögulega gerst? Örvænting og græðgi,“ skrifaði fyrirtækið í dómsskjölum sem lögð voru fram í New York.
DB Ventures heldur því einnig fram að Coty hafi gefið upp of lága sölu, sem hafi kostað fyrirtækið um 6 milljónir dollara í ógreidd leyfisgjöld.
Coty hafnar ásökununum og hefur farið fram á að málinu verði vísað frá. „Meintar skaðabótafjárhæðir eru alfarið getgátur,“ sögðu lögmenn fyrirtækisins.
Coty heldur því fram að fyrirtæki Beckhams vilji losna snemma undan núgildandi samningi eftir að hafa samið við keppinautinn Interparfums.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗