Leikmenn sendu skýr skilaboð um Frey
Jonas Svensson, fyrirliði Rosenborg, greindi frá því við Nettavisen að leikmenn liðsins hefðu óskað eftir því að Freyr Alexandersson stýrði liði…
Jonas Svensson, fyrirliði Rosenborg, greindi frá því við Nettavisen að leikmenn liðsins hefðu óskað eftir því að Freyr Alexandersson stýrði liðinu áfram í leiknum gegn Molde á morgun, þrátt fyrir viðræður um möguleg vistaskipti til Swansea.
Ákvörðunin um að hann gerði það hefði þó verið í höndum Alfreðs Finnbogasonar íþróttastjóra og annarra stjórnenda félagsins.
„Alfreð og ég ræddum saman. Sem fyrirliði reyni ég að skilja sjónarmið og stemninguna í hópnum,“ sagði Svensson við Nettavisen.
Svensson hvatti einnig stuðningsmenn, sem eru ósáttir við stöðuna, til að styðja liðið í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í Evrópukeppni.
„Það mikilvægasta núna er að við vinnum á laugardaginn,“ sagði hann. „Ég skil gremju stuðningsmannanna, en styðjið liðið og einblínið ekki of mikið á þetta.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/55/1695553.jpg)