Sameiginleg kyrrðar- og samverustund í Fossvogskapellu
Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi (STLÍ), í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkur, býður til sameiginlegrar kyrrðar- o…
Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi (STLÍ), í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkur, býður til sameiginlegrar kyrrðar- og samverustundar í Fossvogskapellu í dag klukkan 17.
Tilefnið er sjóslysið þegar skipið Jökull ÞH sökk þar sem þrír skipverjar fórust en fjórtán var bjargað.
„Fossvogskapella verður opin frá kl. 17 og fram á kvöld fyrir öll þau sem eiga um sárt að binda vegna slyssins. Þar gefst fólki kostur á að eiga kyrrðarstund, biðjast fyrir, minnast þeirra sem fórust eða einfaldlega eiga samveru með öðru fólki sem upplifir sorg og óvissu í kjölfar atburðanna,“ segir í tilkynningu.
Samverustundin er jafnframt hugsuð fyrir þau sem búsett eru á höfuðborgarsvæðinu og eiga þess ekki kost að fara um langan veg til að vera nær þeim sem málið snertir.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗