Hiti fer aldrei úr tísku

Svört vika er hafin hjá Sauna.is og fæst allt að 50% afsláttur af heitum pottum og útisánum.

Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri Sauna.is segir gaman að fylgjast með því hvernig sánan hefur bæst við rótgróna heitapottsmenningu Íslendinga. Sjálf kann hún sérstaklega að meta samveruna sem skapast þegar símarnir eru lagðir til hliðar. mbl.is/Karítas

Svört vika er hafin hjá Sauna.is og fæst allt að 50% afsláttur af heitum pottum og útisánum.

Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri Sauna.is segir gaman að fylgjast með því hvernig sánan hefur bæst við rótgróna heitapottsmenningu Íslendinga. Sjálf kann hún sérstaklega að meta samveruna sem skapast þegar símarnir eru lagðir til hliðar.

„Ég hef starfað lengi í tískuheiminum og þar koma tískustraumar og fara. Að láta sér líða vel fer hins vegar aldrei úr tísku. Það er nákvæmlega þaðan sem slagorðið okkar í Svartri viku kemur, því hiti fer bókstaflega aldrei úr tísku,“ segir Eva og hlær.

Sána hefur bæst við rótgróna heitapottsmenningu Íslendinga og þar er auðvelt að láta sér líða vel. Ljósmynd/Aðsend

Yfir 600 þúsund krónur í sparnað

Eva talar um að Sauna.is hafi ákveðið að taka almennilega þátt í svartri viku í ár og bjóði því allt að 50% afslátt af heitum pottum. „Þar getur fólk sparað yfir 600 þúsund krónur. Svo erum við með virkilega góð tilboð á sánum.

Útisána frá SaunaLab fyrir allt að fjóra kostar nú 899.900 krónur með Tylö Pure-sánuofni. Þar sparar fólk hálfa milljón króna.

Við bjóðum líka 20% afslátt af fylgihlutum og þar leynast margar skemmtilegar jólagjafir.“

Sauna.is býður 50% afslátt af heitum pottum, virkilega góð tilboð á sánum og 20% afslátt af fylgihlutum. Ljósmynd/Aðsend

Sánan sækir í sig veðrið

„Við Íslendingar höfum auðvitað lengi kunnað að meta heita potta en það er gaman að sjá hvernig sánamenningin hefur rutt sér til rúms hér á landi.

Áhuginn er mikill hjá yngra fólki á sánum, köldum böðum og heilbrigðum lífsstíl,“ segir Eva.

Á Norðurlöndunum á sánumenningin sér langa sögu og víða er sánan sjálfsagður hluti af daglegu lífi.

Sauna.is býður meðal annars vörur frá sænska fyrirtækinu Tylö sem hefur áratuga reynslu af hönnun og framleiðslu á sánum og sánubúnaði.

Það er mikill áhugi hjá Íslendingum á sánum, köldum böðum og heilbrigðum lífsstíl. Ljósmynd/Aðsend

Þá talar Eva um að í finnskri rannsókn sem birtist í JAMA Internal Medicine hafi rúmlega 2.300 körlum verið fylgt eftir í um 20 ár.

Áhættan á dauða af völdum hjarta- og æðasjúkdóma reyndist um helmingi minni hjá þeim sem fóru í sánu fjórum til sjö sinnum í viku en hjá þeim sem fóru einu sinni í viku.

„Margir sækja í sánuna til að slaka á, losa um vöðvaspennu eftir æfingar eða einfaldlega til að eiga góða stund með sjálfum sér,“ segir Eva.

Sána-kúrekahattur er gjöfin fyrir alla alvöru gusu- og sánumeistara.

Sána-kúrekahattur er gjöfin fyrir alla alvöru gusu- og sánumeistara. Ljósmynd/Aðsend

Bestu samtölin í sánunni

„Það sem mér finnst ekki síður mikilvægt við sánuna og heita pottinn er samveran sem þar skapast. Við erum öll á hlaupum í dagsins önn og ótrúlega stór hluti af tíma okkar fer í að horfa á einhvers konar skjá. Í sánunni og heita pottinum leggjum við símana frá okkur.

Þar gefst tími til að spjalla, hlæja saman og hlusta hvert á annað. Ég held að mörg okkar sakni þess að eiga fleiri svona stundir saman. Það á ekki síst við á heimilum með unglinga þar sem samverustundunum vill oft fækka eftir því sem börnin eldast.“

Það er ýmislegt til sem getur gert sánustundina enn betri.

Það er ýmislegt til sem getur gert sánustundina enn betri. Ljósmynd/Aðsend

Sánahattar og jólailmur

Eva segir marga reka upp stór augu þegar þeir sjá sánahatta í fyrsta sinn og velta fyrir sér til hvers þeir séu. „Það er nefnilega heil menning í kringum sánuna og ýmislegt sem getur gert sánustundina enn betri.

Hattarnir einangra höfuðið frá hitanum og hjálpa til við að verja hárið. Þannig getur fólki fundist þægilegra að sitja í hitanum.

Svo er ég mjög hrifin af því að nota ilmolíur í sánunni. Ferskur appelsínu- og límónuilmur er til dæmis dásamlegur á dimmum vetrardegi og nú þegar jólin nálgast er gaman að prófa jólailmina okkar.“

Hjá Sauna.is eru virkilega góð tilboð á sánum og til að mynda getur fólk sparað hálfa milljón á útisánu frá SaunaLab. Ljósmynd/Aðsend

Jólagjöf sem öll fjölskyldan getur notið

„Margir halda að það sé flókið að koma sér upp eigin sánu en það þarf hvorki að vera mikið mál né taka mikið pláss. Við erum með fjölbreyttar lausnir fyrir íbúðir, einbýlishús og sumarhús og aðstoðum fólk við að finna það sem hentar hverju heimili,“ segir Eva og bætir við að svo sé sánan gjöf sem öll fjölskyldan getur notið og nýtist ár eftir ár.

„Kannski er besta gjöfin sem við getum gefið hvert öðru einfaldlega meiri tími saman. Ég hvet alla til að skoða þessi góðu tilboð á sauna.is eða kíkja til okkar að Smiðjuvegi 1 í Kópavogi.“

Sánahattarnir einangra höfuðið frá hitanum og hjálpa til við að verja hárið. Þannig getur fólki fundist þægilegra að sitja í hitanum. Ljósmynd/Aðsend

„Tilboðin okkar gilda til og með mánudeginum 30. nóvember eða á meðan birgðir endast,“ segir Eva að lokum.

Það er gott að nota ilmolíur í sánunni og til dæmis er ferskur appelsínu- og límónuilmur dásamlegur. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab