Aðalsteinn ráðinn ritstjóri Heimildarinnar
Aðalsteinn Kjartansson hefur verið ráðinn ritstjóri Heimildarinnar af stjórn Sameinaða útgáfufélagsins. Greint er frá þessu í Heimildinni í dag.…
Fókus
Föstudaginn 27. nóvember 2026 08:51
Aðalsteinn Kjartansson. Mynd/Heimildin
Aðalsteinn Kjartansson hefur verið ráðinn ritstjóri Heimildarinnar af stjórn Sameinaða útgáfufélagsins. Greint er frá þessu í Heimildinni í dag.
Þar segir einnig að Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir stígur til hliðar úr stóli ritstjóra og fer í tólf mánaða veikindaleyfi.
Aðalsteinn hóf störf í blaðamennsku árið 2010 á DV og hefur einnig starfað á Stundinni, RÚV og Reykjavík Media.
Hann hlaut verðlaun Blaðamannafélagsins árið 2019 fyrir rannsóknarblaðamennsku og hlaut svo Blaðamannaverðlaun ársins fyrir árið 2021.
Skrif Aðalsteins hafa orðið til ýmissa sakamálarannsókna og þá hefur einnig skipuð rannsóknarnefnd á Alþingi vegna skrifa hans.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗