Sjoppumál í Laugardalnum til umræðu - Telja óeðlilegt að eitt félag fái fleiri milljónir í rekstur sinn

Það fyrirkomulag að Þróttur Reykjavík sjái um sjoppuna á landsleikjum á Laugardalsvelli var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni.

Það fyrirkomulag að Þróttur Reykjavík sjái um sjoppuna á landsleikjum á Laugardalsvelli var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni.

Búist er við níu þúsund áhorfendum á landsleik íslenska kvennalandsliðsins í næstu viku en KSÍ og styrktaraðilar sambandsins bjóða fólki frítt á völlinn. Um er að ræða úrslitaleik við Portúgal um miða á HM.

Þróttur hefur um árabil séð um sjoppuna á landsleikjum og nýtur félagið góðs af því þegar vel er mætt á Laugardalsvöll.

Ríkharð Óskar Guðnason setti spurningamerki við þetta fyrirkomulag í þættinum og tók Kristján Óli Sigurðsson undir með honum.

„Þetta er galið. Hvernig sætta önnur aðildarfélög KSÍ sig við þetta? Þetta nær mörg ár aftur í tímann. Hvað heldur þú að Þróttur hafi tekið inn á síðustu árum? Í gegnum gullöld karlaliðsins og fleira,“ sagði Kristján Óli.

433.is hefur rætt við nokkra aðila frá íslenskum félögum sem segja málið afar óeðlilegt, einn aðili bendir á að leikur eins og þessi geti skilað Þrótti 4-5 milljónum í tekjum. Á sama tíma eru flest félög að berjast við að ná inn peningum nú þegar hart er í ári í samfélaginu.

Kristján velti því upp hvort ekki væri eðlilegra að fleiri aðildarfélög KSÍ fengju að njóta góðs af sjoppusölunni á landsleikjum.

„Af hverju fá liðin ekki að sjá um sjoppuna? Það væri bara röð. KSÍ ætti kannski að vera með þetta og deila hagnaðinum, ekki bara eitt félag. Þetta er galið.“

Kristján telur þannig eðlilegra að félögin skiptist á að sjá um söluna eða að KSÍ sjái sjálft um hana og skipti hagnaðinum á milli félaga.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab