Minnist föður síns sem lést í sjóslysinu - „Pabbi minn var hörkutól“

Aðalsteinn Steinþórsson lést í sjóslysinu á miðvikudag þegar Jökull ÞH299 sökk á Héraðsdjúpi um sextíu sjómílur austur af Glettingi. Aðalsteinn,…

Aðalsteinn Steinþórsson lést í sjóslysinu á miðvikudag þegar Jökull ÞH299 sökk á Héraðsdjúpi um sextíu sjómílur austur af Glettingi. Aðalsteinn, sem var kallaður Addi Steina, var 59 ára, fæddur 1967.

Dóttir hans Agnes Björg minnist föður síns með færslu á Facebook: 

„Pabbi minn var hörkutól. Villimaður með stórt hjarta og maður sem lét ekki mikið stoppa sig.

Hann var ein stærsta lífsgjöf sem ég og börnin mín höfum fengið. Maðurinn sem elskaði mig, studdi mig og stóð við bakið á mér í einu og öllu. Ekki bara þegar lífið var auðvelt heldur líka þegar það reyndi hvað mest á mig.

Hann var alltaf til staðar. Hann tók á móti börnunum mínum með ást og var þeim stuðningur á sinn hátt. Hann gaf okkur öryggi, hlýju og minningar sem enginn getur nokkurn tímann tekið frá okkur.

Og nú er hann farinn. Allt of snöggt. Í sjóslysi sem breytti lífi okkar á einu augnabliki.

Það er svo ósanngjarnt að maður sem hafði svona stórt hlutverk í lífi okkar skuli vera tekinn frá okkur svona skyndilega.

Ég veit ekki enn hvernig lífið verður án þín, pabbi. Ég veit bara að það verður aldrei eins.

En ég mun bera þig með mér. Í hjartanu, í börnunum mínum, í sögunum sem ég segi þeim og í öllu því góða sem þú skildir eftir í okkur.

Takk fyrir að vera pabbi minn. Takk fyrir að elska mig. Takk fyrir að gefast aldrei upp á mér.

Þú varst og verður alltaf einn af mínum stærstu fjársjóðum.

Og ef ég gæti fengið eina mínútu í viðbót með þér myndi ég ekki biðja um neitt annað en að fá að faðma þig, segja þér hversu mikið þú skiptir mig máli og þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum.

Og eitt af því fallegasta sem þú gafst okkur var fjölskyldan þín. Þau tóku okkur inn í sinn hóp, ekki sem utanaðkomandi heldur sem sína eigin fjölskyldu. Þú gafst okkur ekki aðeins ást þína heldur líka fólk sem við eigum eftir að eiga saman um ókomin ár.

Það er dýrmæt gjöf sem ég mun alltaf vera þakklát fyrir. Ég vona að við stöndum saman, höldum utan um hvort annað og varðveitum tengslin sem þú hjálpaðir til við að skapa.

Hörkutólið mitt. Pabbi minn. Að eilífu. 

Þar til við hittumst á ný

F:28.10.1967 D:25.11.2026

þín einkadóttir Agnes“ 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab