Óvissa með stjörnu Íslands – tæp vika í EM
Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona í handbolta, meiddist í upphafi vináttulandsleiks Íslands gegn Svíþjóð í Malmö í gær. Umfang meiðslanna …
Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona í handbolta, meiddist í upphafi vináttulandsleiks Íslands gegn Svíþjóð í Malmö í gær. Umfang meiðslanna er óljóst en unnið er að því að koma henni í myndatöku í dag, samkvæmt Handkastinu.
Ísland vann leikinn 29:28 en Elín Klara haltraði af velli og hélt um hnéð. Hún er í lykilhlutverki hjá landsliðinu sem hefur leik á Evrópumótinu á fimmtudag.
„Við vitum lítið eins og er og erum að vinna í því með Svíunum að koma henni í myndatöku á morgun,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari við Handkastið í gær.
Ísland mætir Svíþjóð aftur í Halmstad á morgun í síðasta undirbúningsleik sínum fyrir EM. Fyrsti leikurinn á mótinu verður gegn Slóveníu í Oradea í Rúmeníu 3. desember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗