Þakklátur unnustunni
Búferlaflutningarnir á atvinnumannaferlinum hafa kennt Alfons Sampsted að einfalda hlutina. Bakvörðurinn, sem leikur með Go Ahead Eagles í Holla…
Búferlaflutningarnir á atvinnumannaferlinum hafa kennt Alfons Sampsted að einfalda hlutina. Bakvörðurinn, sem leikur með Go Ahead Eagles í Hollandi, kaupir ekki lengur húsgögn í hvert sinn sem hann kemur sér fyrir á nýjum stað.
„Maður er hættur að taka íbúðir og fylla þær af húsgögnum. Maður leigir alltaf með húsgögnum núna. Maður lærir,“ sagði Alfons í samtali við Morgunblaðið.
„Í fyrsta skipti var maður með fulla íbúð af húsgögnum og þurfti síðan að flytja. Það hefur ekki gerst aftur síðan.“
Hann sagði annað sem fylgdi flutningunum einnig venjast með tímanum.
„Það venst að koma inn í nýjan hóp og kynnast öllum. Það venst að mæta á nýjan stað og þurfa að finna sér nýjan klippara og redda öllu.“
Unnusta hans Sunna Dögg Ragnarsdóttir á einnig auðvelt með að laga sig að nýjum aðstæðum.
„Konan mín er líka mjög sveigjanleg og góð í þessu þannig að fyrir okkur er þetta orðið nokkuð eðlilegt. Maður veit líka að þetta endist ekkert að eilífu. Þetta er ekkert lengsti ferill í heimi ef maður ber þetta saman við venjulega vinnu.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗