Eldur í iðnaðarhúsnæði á Ægisíðu

Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði á Ægisíðu á sjöunda tímanum í morgun og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út.

Innlent | mbl | 27.11.2026 | 7:23 | Uppfært 7:49

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði á Ægisíðu á sjöunda tímanum í morgun og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út.

Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við mbl.is að kviknað hafi í smá dóti innandyra. Hann segir að allir bílar hafi verið sendir á staðinn en öllum nema einum hafi verið snúið við og búið sé að slökkva eldinn.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab