Gæti verið mjög stutt í næstu stóru frétt í City-málinu

Manchester City gæti fengið niðurstöðu í áfrýjun sinni vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar á næstu vikum.Félagið var fundið se…

Manchester City gæti fengið niðurstöðu í áfrýjun sinni vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar á næstu vikum.

Félagið var fundið sekt um 114 brot á fjármálareglum deildarinnar en City hefur áfrýjað niðurstöðu óháðrar nefndar.

Stefan Borson, fyrrum fjármálaráðgjafi Manchester City, segir að samkvæmt sínum upplýsingum verði áfrýjunin tekin fyrir um miðjan desember.

„Okkur hefur verið sagt að þetta verði um miðjan desember og líklega hefst málsmeðferðin þann 12. desember,“ sagði Borson í þættinum Football Uncensored.

„Líklega mun þetta taka á milli fimm og tíu daga og því ljúka fyrir jól. Þá bíðum við eftir niðurstöðu.“

Borson telur að forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar vilji hraða málsmeðferðinni eins og kostur er svo hægt verði að refsa Manchester City á yfirstandandi tímabili, verði niðurstaðan félaginu í óhag.

Mögulegar refsingar eru háar sektir og stigafrádráttur en í versta falli gæti Manchester City verið vísað úr ensku úrvalsdeildinni.

Ekki liggur fyrir hvenær endanleg niðurstaða fæst í málið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab