Tanja lenti í ótrúlegri lífsreynslu – Var í fríi þegar hún komst að því að hún væri látin
Tanja Rauth, 54 ára kona frá Þýskalandi, var stödd í fríi í Bretagne í Frakklandi þegar hún ákvað að slá nafni sínu upp á Google. Henni brá held…
Tanja Rauth, 54 ára kona frá Þýskalandi, var stödd í fríi í Bretagne í Frakklandi þegar hún ákvað að slá nafni sínu upp á Google. Henni brá heldur betur í brún þegar hún komst að því að samkvæmt gervigreindartóli Google var hún látin.
„Ég las mína eigin minningargrein. Þar var fjallað um störf mín og birtar myndir af mér. Gervigreindin hafði lýst mig látna,“ segir Tanja í samtali við þýska blaðið Bild.
Samkvæmt upplýsingunum sem birtust á skjánum hafði Tanja látist þann 9. október 2025.
Skýringin á þessu var sú að alnafna hennar hafði látist á síðasta ári og hafði gervigreindin blandað saman upplýsingum um konurnar tvær.
Fyrr á þessu ári hafði gamall skólafélagi Tönju meira að segja hringt í eiginmann hennar til að votta honum samúð sína eftir að hafa rekist á minningargrein um nöfnu hennar.
Tanja tilkynnti villuna og fengust um tuttugu manns úr hennar nánasta umhverfi til að gera slíkt hið sama. Um tíma virtist það bera árangur en ekki leið á löngu þar til gervigreindin lýsti hana aftur látna.
Tanja tók þá til sinna ráða, jók virkni sína á samfélagsmiðlum og birti nýjar upplýsingar um sjálfa sig á heimasíðu sinni.
„Mig óraði aldrei fyrir því að stór hluti af vinnu minni fælist í því að sýna aftur og aftur fram á að ég væri á lífi,“ segir hún.
Á endanum hurfu röngu upplýsingarnar en reynslan hefur orðið til þess að Tanja treystir gervigreind mun síður en áður.
„Áður fyrr var nóg að vera í símaskránni. Í dag þarf maður ekki bara að vera sýnilegur á netinu heldur þarf gervigreindin líka að finna mann. Helst á lífi.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗