Margir minnast Ingvars Jónssonar - „Ég mun aldrei gleyma þeim eða þér“
Mikil sorg ríkir í íslenska knattspyrnuheiminum eftir fráfall Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings og fyrrverandi landsliðsmanns Íslands, sem l…
Mikil sorg ríkir í íslenska knattspyrnuheiminum eftir fráfall Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings og fyrrverandi landsliðsmanns Íslands, sem lést í gær, miðvikudaginn 25. nóvember, aðeins 37 ára að aldri.
Ingvar hafði glímt við krabbamein en hann lést í faðmi sinna nánustu.
Fjölmargir fyrrverandi samherjar, vinir og aðrir úr knattspyrnusamfélaginu hafa minnst Ingvars með fallegum orðum á samfélagsmiðlum undanfarinn sólarhring.
Ingvar var einn sigursælasti markvörður íslenskrar knattspyrnu á síðustu árum. Hann varð meðal annars Íslandsmeistari með Stjörnunni árið 2014 og fjórum sinnum með Víkingi. Þá lék hann átta A-landsleiki og var í íslenska landsliðshópnum á EM í Frakklandi árið 2016.
„Ég mun aldrei gleyma þeim eða þér“
Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður Íslands, birti sérstaklega fallega kveðju til Ingvars á Instagram.
Hann deildi mynd af þeim saman í íslenska landsliðsbúningnum og rifjaði upp góðar minningar af ferðum þeirra með landsliðinu.
„Elsku Ingvar. Þessi mynd var tekin eftir okkar fyrsta A-landsleik saman. Það rifjast upp svo margar góðar minningar frá öllum ferðum okkar, þegar við vorum herbergisfélagar, hláturinn og öll skemmtunin.“
„Takk fyrir allar þessar stundir. Ég mun aldrei gleyma þeim eða þér,“ skrifaði Hörður.
Hann birti jafnframt aðra mynd af Ingvari og skrifaði:
„Hvíldu í friði elsku vinur. Þín verður sárt saknað.“
„Einn besti liðsfélagi sem ég hef haft“
Matthías Vilhjálmsson, fyrrverandi samherji Ingvars hjá norska félaginu Start og Víkingi, minntist einnig góðs vinar.
Matthías birti mynd af Ingvari í búningi Víkings og skrifaði persónulega kveðju þar sem hann rifjaði upp vináttu þeirra.
„Elsku vinur minn, sessunautur í klefanum, samherji hjá Start og Víkingi og einn besti liðsfélagi sem ég hef haft.“
„Rosalega á ég eftir að sakna þín. Takk fyrir allar minningarnar og alla fimmaurana. Hvíldu í friði,“ skrifaði Matthías.
„Gull af manni og sannkallaður sigurvegari“
Hannes Þór Halldórsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands, minntist Ingvars einnig með hlýjum orðum.
„Meistari í öllum skilningi orðsins er fallinn frá. Gull af manni og sannkallaður sigurvegari sem steig alltaf upp þegar mest var undir.“
„Dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda. Hvíl í friði Ingvar og takk fyrir góðar stundir,“ skrifaði Hannes.
Fjöldi landsliðsmanna sendir kveðjur
Fjölmargir aðrir landsliðsmenn, fyrrverandi og núverandi, hafa birt myndir af Ingvari og sent honum hinstu kveðjur.
Hólmar Örn Eyjólfsson birti mynd af Ingvari og skrifaði: „Hvíldu í friði vinur,“ ásamt bláu hjarta.
Arnór Sigurðsson birti sömu mynd og skrifaði: „Hvíldu í friði,“ ásamt rauðu hjarta.
Logi Tómasson minntist Ingvars á ensku. „Rest in peace my friend. You will be missed,“ skrifaði Logi, eða „Hvíldu í friði vinur minn. Þín verður sárt saknað.“
Jón Dagur Þorsteinsson birti einnig mynd af Ingvari og skrifaði: „Hvíldu í friði elsku vinur.“
Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands, sendi sömuleiðis hjartnæma kveðju. „Hvíldu í friði elsku vinur. Þín verður sárt saknað,“ skrifaði Jóhann Berg.
Albert Guðmundsson birti mynd af Ingvari og skrifaði: „Hvíldu í friði vinur.“
Rúnar Már Sigurjónsson, sem lék með Ingvari í landsliðinu, minntist hans einnig. „Hvíldu í friði elsku vinur,“ skrifaði Rúnar Már.
Jón Guðni Fjóluson, fyrrverandi samherji Ingvars, tók í sama streng. „Hvíldu í friði elsku vinur,“ skrifaði Jón Guðni.
Ögmundur Kristinsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, birti sömuleiðis minningarmynd og skrifaði: „Hvíldu í friði vinur.“
Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður og núverandi stjórnarmaður í knattspyrnudeild Víkings, birti mynd af Ingvari og skrifaði: „Hvíldu í friði elsku vinur minn.“
Birkir Bjarnason minntist Ingvars með brostnu hjarta og bláu hjarta á Instagram.
Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg í Noregi og fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, birti einnig minningarmynd af Ingvari ásamt rauðu hjarta.
Þórður Ingason, fyrrverandi markvörður, sendi fjölskyldunni samúðarkveðjur á Facebook.
„Frábær liðsfélagi og betri vinur, innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu,“ skrifaði Þórður.
Félögin minnast mikils sigurvegara
Knattspyrnufélagið Víkingur tilkynnti um andlát Ingvars og sendi fjölskyldu hans og ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
„Það er með miklum söknuði og djúpri sorg sem við greinum frá því að okkar kæri vinur og samherji Ingvar Jónsson, markvörður Víkings, lést miðvikudaginn 25. nóvember, í faðmi sinna nánustu,“ segir í tilkynningu félagsins.
Stjarnan minntist Ingvars einnig en hann var lykilmaður í sögulegu Íslandsmeistaraliði félagsins árið 2014.
„Hann var lykilmaður í einu eftirminnilegasta tímabili í sögu félagsins og skipar varanlegan sess í hjörtum Stjörnufólks,“ segir meðal annars í tilkynningu Stjörnunnar.
Uppeldisfélag Ingvars, Njarðvík, birti ítarlega minningargrein um fyrrverandi leikmann sinn.
Þar var rifjað upp hvernig Ingvar fékk tækifæri í meistaraflokki aðeins 18 ára gamall og vann sig síðan upp í fremstu röð íslenskra markvarða.
Njarðvíkingar rifjuðu meðal annars upp orð Ingvars sjálfs um tækifærið sem hann fékk hjá félaginu á sínum tíma.
„Ég var alveg óskrifað blað á þeim tíma og er Njarðvíkingum mjög þakklátur að hafa gefið mér tækifæri.“
Félagið segir að minning Ingvars muni lifa áfram og að saga hans verði ungum iðkendum dýrmæt fyrirmynd.
„Við erum innilega þakklát fyrir að hafa fengið að vera hluti af vegferð Ingvars og fyrir þann dýrmæta kafla sem hann skrifaði í sögu félagsins okkar.“
Ingvar skilur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.
Af kveðjunum er ljóst að Ingvars verður ekki aðeins minnst fyrir frammistöðu hans á knattspyrnuvellinum, heldur einnig fyrir þá vináttu og þær minningar sem hann skilur eftir sig.
Blessuð sé minning Ingvars Jónssonar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗