„Jólin koma þegar maður finnur ilminn af rjúpunum“

Kökur sem gestir gera sér sérstaka ferð fyrir, jólaís úr smiðju Michelin-kokks og hátíðarborð þar sem fjölskyldan er í aðalhlutverki. Jólamatur …

Margrét Bjarnadóttir og faðir hennar, Bjarni Benediktsson, prýða forsíðu Jólamatar Morgunblaðsins með graskersköku sem Margrét skreytti með súkkulaðikönglum. Þau deila ástríðu fyrir góðum mat og bakstri. Blaðið fylgdi Morgunblaðinu til áskrifenda í morgun. mbl.is/Eyþór Árnason

Kökur sem gestir gera sér sérstaka ferð fyrir, jólaís úr smiðju Michelin-kokks og hátíðarborð þar sem fjölskyldan er í aðalhlutverki. Jólamatur Morgunblaðsins kemur út í dag, fullt af uppskriftum, jólaminningum og hugmyndum fyrir veislur vetrarins.

Margrét Bjarnadóttir matreiðslukona og faðir hennar, Bjarni Benediktsson, prýða forsíðu blaðsins með graskersköku sem Margrét skreytti með súkkulaðikönglum. Þau eiga sameiginlega ástríðu fyrir góðum mat og fram undan eru sérstaklega hátíðleg fjölskyldujól. Amma Margrétar, Margrét Sigríður Björnsdóttir, á stórafmæli á aðfangadag.

„Jólin koma eiginlega fyrst þegar maður finnur ilminn af rjúpunum,“ segir Margrét, sem deilir uppskrift að kryddaðri graskersköku og tveimur hátíðardrykkjum.

Súkkulaðikönglarnir á graskersköku Margrétar eru úr marsípani, möndluflögum og súkkulaði. Nánar má lesa um gerð þeirra og finna uppskriftina að kökunni í Jólamat Morgunblaðsins. mbl.is/Eyþór

Leyndarmálin úr eldhúsum kokkanna

Agnar Sverrisson á Moss deilir uppskrift að magdalenukökum sem hafa fylgt honum frá því hann opnaði Texture í London árið 2007. Litlu kökurnar hafa eignast sinn eigin aðdáendahóp.

„Það komu gestir sérstaklega til okkar til að fá magdalenurnar og það sama gerist á Moss í dag,“ segir Agnar.

Agnar Sverrisson hefur bakað magdalenukökur sem gestir gerðu sér sérstaka ferð fyrir, fyrst á Texture í London og síðar á Moss. Nú deilir hann uppskriftinni í Jólamat Morgunblaðsins. Ljósmynd/Aðsend

Þráinn Freyr Vigfússon færir ris à l’amande í nýjan búning og sýnir hvernig gera má jólaís í Ninja CREAMi. Með ísnum ber hann fram kirsuber og stökka möndlumylsnu með jólakryddi.

Hvað gerist þegar Michelin-kokkur notar Ninja CREAMi? Þráinn Freyr Vigfússon gerir ris à l’amande-ís með möndlu- og kryddmylsnu og kirsuberjum. Uppskriftin birtist í Jólamat Morgunblaðsins. mbl.is/Eggert

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík og keppandi í Bocuse d’Or, leggur á veisluborðið stökka andabringu með krydduðum perum og grillaðan risahumar með toffírauðbeðum og kavíar. Sigurður Laufdal á Lólu sækir hins vegar innblástur til Ítalíu og býður upp á villisveppacappuccino og trufflukonfekt. Þá er einnig á boðstólum kokteill úr smiðju Ragnars Erlusonar yfirbarþjóns.

Grillaður risahumar með toffírauðbeðum, freyddri humarsósu og kavíar að hætti Snædísar á Fröken Reykjavík. Uppskriftina má finna í Jólamat Morgunblaðsins. mbl.is/Árni Sæberg

Kertaljós og smáréttir á Þorláksmessu

Mæðgurnar Klara Sigríður Thorarensen og Helen Málfríður Óttarsdóttir í Heimahúsinu kunna að skapa veislu úr mörgum litlum réttum. Á Þorláksmessu raða þær góðgæti á borðið með gömlu silfri og svörtum leir. Meðal þess sem lesendur geta spreytt sig á eru ansjósubrauð, smjördeigsbaka og skalottlauksbaka sem mæðgurnar kalla stjörnuna á borðinu.

Helen Málfríður Óttarsdóttir bakar smjördeigsböku með kartöflum, blaðlauk og geitaosti. Uppskriftina má finna í Jólamat Morgunblaðsins. Ljósmynd/Aðsend

Halla Bára Gestsdóttir segir frá aðventu með stóru jólatré, heimabakstri og uppskriftum sem ganga á milli kynslóða. Hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sverrisson ljósmyndari, láta eigin smekk ráða ferðinni og njóta þess að gefa eldamennskunni tíma.

Halla Bára Gestsdóttir heldur upp á aðventuna með heimabakstri og uppskriftum sem ganga á milli kynslóða. Í Jólamat Morgunblaðsins deilir hún eftirlætisuppskriftum úr bókinni Desember. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Sætar gjafir og óvænt hráefni

Eyþór Gylfason og Þórunn Edda Magnúsdóttir í Ketilkaffi á Akureyri deila meðal annars uppskriftum að kryddaðri gulrótarköku og karamellum sem henta vel í heimagerðar jólagjafir.

Kakan frá Ketilkaffi á Akureyri er sem lítið listaverk. Eyþór Gylfason og Þórunn Edda Magnúsdóttir deila uppskriftum úr smiðju sinni í Jólamat Morgunblaðsins. Ljósmynd/Aðsend

Anna Jia sameinar baskneska ostaköku og ameríska graskersböku í hátíðlegum eftirrétti. Misókaramellan sem fylgir fær þó nærri því aðalhlutverkið.

„Hún er líka dásamleg með ís eða vöfflum,“ segir Anna.

Anna Jia, sem nam sætabrauðsgerð við Le Cordon Bleu í London, deilir uppskrift að graskersostaköku með misókaramellu í Jólamat Morgunblaðsins. Ljósmynd/Aðsend

Ari Hermannsson, bakari og eigandi 280 Bakarís við Klapparstíg, deilir uppskrift að grænni lagköku með rausnarlegum lögum af léttu smjörkremi úr marens og íslensku smjöri.

„Þetta er held ég bara besta lagkaka sem ég hef gert,“ segir Ari.

Ari Hermannsson, bakari og eigandi 280 Bakarís, deilir uppskrift að grænni lagköku með léttu smjörkremi úr marens og íslensku smjöri. mbl.is/Árni Sæberg

Elínrós Líndal, sem hefur umsjón með blaðinu, segir markmiðið hafa verið að skapa blað sem lesendur vildu halda til haga.

„Mig langaði að gera blað sem lægi frammi yfir hátíðarnar, sem væri fallegt að fletta, freistandi að elda upp úr og þess virði að geyma.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab