Hvetur Pútín til að binda enda á árásir í Evrópu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beðið Vladímír Pútín forseta Rússlands um að „draga til baka alla hernaðarlega árásargirni“ gegn Evró…
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beðið Vladímír Pútín forseta Rússlands um að „draga til baka alla hernaðarlega árásargirni“ gegn Evrópu, sem er ný breyting á tóni hans gagnvart rússneska leiðtoganum sem hann kallaði vin sinn í síðustu viku.
Trump sagðist hafa sett fram beiðnina við Pútín þegar þeir hittust í Kína í síðustu viku og bætti við að hann teldi að það myndi stuðla að samkomulagi um að binda enda á stríð Rússa í Úkraínu.
Ummæli Trumps koma degi eftir að hann tók á móti Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, í Flórída, en að fundinum loknum sendu leiðtogarnir tveir frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem Rússar voru hvattir til að víkka ekki út stríðið í Úkraínu.
„Í samtölum mínum í Kína við Vladímír Pútín forseta Rússlands varði ég miklum tíma í að ræða þá staðreynd að ég vildi sjá Pútín forseta draga til baka alla hernaðarlega árásargirni gegn landsvæðum víðs vegar um Evrópu,“ sagði Trump á samfélagsmiðli sínum Truth Social.
Trump sagðist hafa gert það „í von um að hægt verði að ná samkomulagi milli Rússlands og Úkraínu, og það fljótt“.
Sterkar líkur á því
„Ég tel í alvöru að það séu sterkar líkur á því,“ bætti hann við.
Evrópuríki hafa haft vaxandi áhyggjur af því sem þau líta á sem ögranir af hálfu Rússa, þar á meðal að þrjár rússneskar stýriflaugar lentu í NATO-ríkinu Póllandi í síðustu viku.
Í samtali við fréttamenn á Mar-a-Lago-setri sínu í Flórída í gær sagðist Trump ekki viss um hvort Pútín kæmi á leiðtogafund G20-ríkjanna í Miami í næsta mánuði, „en ef hann vildi koma gæti hann það svo sannarlega“.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗