Óttast að eiginmaður hennar taki sannleikann með sér í gröfina
Kona leitar til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun í von um aðstoð við erfiðum vanda.Hún komst nýlega að því að eiginmaður hennar hélt framhjá…
Kona leitar til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun í von um aðstoð við erfiðum vanda.
Hún komst nýlega að því að eiginmaður hennar hélt framhjá henni með systur hennar. En málið flækist verulega því eiginmaður hennar er að deyja úr krabbameini og neitar að segja henni hvað hafi gerst á milli þeirra.
„Ég er 36 ára og eiginmaður minn er 43 ára. Við eigum tvö börn, 12 og 10 ára, sem elska pabba sinn. Við höfum byggt fallegt fjölskyldulíf saman og þó að eiginmaður minn hafi aldrei sýnt það mikla umhyggju og ást þá hélt ég í alvöru að líf okkar saman væri gott og ástríkt.
Líf okkar snerist á hvolf þegar hann var greindur með briskrabbamein á fjórða stigi. Ég var að tala við vinkonu mína um greininguna og hvernig ég ætti erfitt með að sætta mig við þetta. Hún varpaði fram sprengju sem gjörsamlega eyðilagði mig.
Hún sagði mér að eiginmaður minn og systir mín hefðu átt í leynilegu ástarsambandi í heilt ár en þau slitu því nokkrum mánuðum fyrir greiningu.“
Konan spurði eiginmann sinn út í málið. Hann játaði en neitaði að segja nokkuð meira. „Hann baðst ekki einu sinni afsökunar. Ég get hvorki borðað né sofið,“ segir konan.
„Ég skil ekki hvernig hann getur verið svona illkvittinn með svona lítinn tíma eftir á jörðinni. Hann virðist harðákveðinn í að taka sannleikann með sér í gröfina en ég þarf svör áður en það er of seint.“
Ráðgjafinn svarar:
„Þú átt eftir að vera stolt af seiglu þinni og styrk þegar þú lítur til baka og sérð lífið sem þér tókst að byggja aftur eftir þessi miklu svik.
Þó að gjörðir hans hafi valdið þér miklum sársauka þá geta hugsanlega veikindi hans hjálpað ykkur að sættast. Hreinskilni skiptir máli, þið þurfið að vera heiðarleg og reyna að pæla ekki of mikið í smáatriðum fortíðarinnar. Beinið athygli ykkar að börnunum og að hjálpa þeim.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗