Æfing hjá Pochettino vekur mikla athygli - Segist aldrei hafa séð þetta áður

Mauricio Pochettino, stjóri Manchester United, lét þá leikmenn sem komu ekki við sögu gegn Sporting í Meistaradeildinni í fyrrakvöld taka lyftin…

Mauricio Pochettino, stjóri Manchester United, lét þá leikmenn sem komu ekki við sögu gegn Sporting í Meistaradeildinni í fyrrakvöld taka lyftingaæfingu að leik loknum.

Frá þessu greinir enska götublaðið Mirror.

Mikið hefur verið rætt um líkamlegt ástand leikmanna United en Pochettino er þekktur fyrir að gera miklar kröfur til sinna leikmanna þegar kemur að líkamlegu formi.

Owen Hargreaves, fyrrum miðjumaður Manchester United, var staddur í Lissabon og kom þessi ákvörðun argentínska stjórans honum verulega á óvart.

„Ég hef aldrei séð lyftingaæfingu eftir útileik í Meistaradeildinni,“ sagði Hargreaves.

United hefur undanfarin ár verið á meðal þeirra liða í ensku úrvalsdeildinni sem hlaupa hvað minnst í leikjum.

Jamie Carragher benti á það eftir tap United gegn Liverpool um síðustu helgi að þétt leikjadagskrá myndi gera Pochettino erfitt fyrir að koma leikmönnum sínum í það form sem hann vill.

Carragher telur einnig hættu á því að leikmenn United verði fyrir meiðslum vegna aukins æfingaálags.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab