Martröð fyrir Alfreð Finnbogason
Joacim Jonsson, knattspyrnusérfræðingur hjá VG og fyrrverandi íþróttastjóri Vålerenga, lýsti mögulegri brottför Freys Alexanderssonar frá Rosenb…
Joacim Jonsson, knattspyrnusérfræðingur hjá VG og fyrrverandi íþróttastjóri Vålerenga, lýsti mögulegri brottför Freys Alexanderssonar frá Rosenborg til Swansea sem martröð fyrir íþróttastjórann Alfreð Finnbogason.
„Þetta er martraðarstaða fyrir Alfreð og í raun það versta sem gæti gerst,“ sagði Jonsson við VG. „Ef Freyr hefur gert upp hug sinn þarf að ná samkomulagi fljótt. Það þýðir ekkert að draga þetta á langinn.“
Simon Mesfin, fyrrverandi íþróttastjóri Lillestrøm, gagnrýndi einnig að Freyr hefði staðfest viðræðurnar opinberlega.
„Ég myndi ekki ráðleggja þjálfara að tilkynna að hann eigi í viðræðum við annað félag á meðan hann þjálfar núverandi félag sitt,“ sagði hann.
Jonsson telur að það yrði stærsta áskorunin að finna arftaka Freys. „Það verður erfitt að finna þjálfara af sömu gerð, því þetta hefur gengið ótrúlega vel.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗