Þegar miðjupartar snertust í Hagaskóla

Samfélag manna fór á hliðina í síðustu viku þegar fréttir bárust af því að tveir starfsmenn í grunnskóla hefðu kysst hvor annan. Í fyrstu var ta…

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um hegðun í Hagaskóla. Ljósmynd/Kári Sverriss

Marta María Winkel veltir því fyrir sér hvað við sem samfélag getum lært af botnhegðun tveggja starfsmanna Hagaskóla.

Samfélag manna fór á hliðina í síðustu viku þegar fréttir bárust af því að tveir starfsmenn í grunnskóla hefðu kysst hvor annan. Í fyrstu var talið að um kossaflens væri að ræða en síðar kom í ljós að starfsmennirnir höfðu látið miðjuparta sína snertast á bak við sandblásið gler. Fólk var í sjokki og miðað við viðbrögðin var eins og það hefði aldrei heyrt um slíkar sameiningar á milli tveggja manneskja. Að ný mannleg hegðun hefði verið uppgötvuð! Gredda í Vesturbænum.

Málið er hið pínlegasta. Það er alveg sama hvernig þessu er snúið eða reynt að snúa út úr. Það kemur alltaf sama niðurstaðan: vandræðalegt.

Ég fann til með settum skólastjóra og svo það sé sagt þá er hún afbragðsmanneskja. Að vera í þeim sporum að þurfa að verja botnhegðun starfsmanna og það opinberlega er líklega ekki sérlegt skemmtiefni. Fólk með mannaforráð veit að starfsmannamál eru flókin á venjulegum hversdegi en hvað gerir stjórnandinn þegar starfsfólkið er farið að deila munnvatni og fleiru á vinnutíma? Hvernig á að taka á slíkum málum? Ég hef ekki hugmynd um það því ég er ekki menntuð á þessu sviði.

Það að láta miðjuparta snertast á bak við sandblásið gler í grunnskóla er ekki refsivert. En það er hins vegar siðlaust.

Þegar ég heyrði um kossaflens í Hagaskóla hélt ég að Guðrún frá Lundi væri upprisin og væri með splunkunýja bók í jólabókaflóðinu. Það næsta sem gerðist var að ljósmynd og myndband af starfsmönnum Hagaskóla dreifðust um samfélagið á leifturhraða. Þar sást glögglega að ekki var einungis um kossaflens að ræða heldur einhverja dýpri tengingu.

Dreifingin var slík að fólk á elliheimilum var farið að reyna að greina hvaða stellingu væri verið að vinna með þegar myndbandið var skoðað í spjaldtölvu.

Það athæfi að áframsenda „dónalega“ ljósmynd er hins vegar refsivert. Dreifing á kynferðislegu myndefni án samþykkis getur varðað allt að fjögurra ára fangelsi. Án þess að ég sé að skipta mér af því þá er ágætt að hafa það bak við eyrað áður en fólk sendir eitthvað sem það fékk sent áfram.

Þegar eitthvað fer í skrúfuna á vinnustað eru viðbrögð umhverfisins misjöfn. Sumir verða eins og lögregla á vakt á slysstað og gera allt rétt á meðan aðrir gera einhverja þvælu eins og stærðfræðikennarinn sem bað nemendur sína vinsamlegast um að þegja yfir þessu atviki. Börnin komu heim til sín og ætluðu ekki að segja foreldrum sínum hvað hafði gerst því þau voru bundin trúnaði. Hver svíkur stærðfræðikennara? Fyrstu viðbrögð við hamförum eru oft afneitun og ég ætla að gefa mér að það hafi átt við kennarann.

En hvað getum við sem samfélag lært af Hagaskólamálinu? Jú, líklega að það er betra að setja upp gifsvegg en sandblásið gler ef markmiðið er að búa til alvöru næði. Fínt að setja líka steinull á milli þilja. Svo lærum við að fólk er bara fólk. Það segir eitt og gerir annað og misstígur sig. Það að elskast á bak við sandblásið gler er svolítið eins og að borða kjötfarsbollur með hvítkáli, rófum, kartöflum og smjöri í hádegismat. Það er gott á meðan á því stendur en svo hellist skömm og vanlíðan yfir allar frumur líkamans. Það tekur smá tíma að núllstillast aftur eftir slíkan hádegisverð.

Fólk á elliheimilum skoðaði myndbandið af starfsmönnum Hagaskóla í spjaldtölvu.

Fólk á elliheimilum skoðaði myndbandið af starfsmönnum Hagaskóla í spjaldtölvu. Ljósmynd/Unsplash

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab