Borgarráð samþykkti án gagna

Engar sérstakar upplýsingar um fjárhagsstöðu Íslenskra aðalverktaka hf. lágu fyrir þegar borgarráð samþykkti 16,8 milljarða króna verksamning um…

Glatt á Hjalla. Inga Sæland íþróttamálaráðherra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. ´mbl.is/Eyþór

Engar sérstakar upplýsingar um fjárhagsstöðu Íslenskra aðalverktaka hf. lágu fyrir þegar borgarráð samþykkti 16,8 milljarða króna verksamning um hönnun og byggingu Þjóðarhallar 29. september.

Reykjavíkurborg óskaði hvorki eftir fjárhagsgögnum um ÍAV né viðbótartryggingum og lagði ekkert sjálfstætt mat á fjárhagslega getu verktakans. Þetta kemur fram í svörum borgarinnar við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Reykjavíkurborg á 45% hlut í Þjóðarhöll ehf. á móti 55% hlut ríkisins. Samkvæmt gögnum sem lögð voru fyrir borgarráð nemur hlutur borgarinnar í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu um 8,7 milljörðum króna. Borgin bendir í svari sínu á að Þjóðarhöll sé sjálfstæður lögaðili og verkkaupi framkvæmdarinnar. Þjóðarhöll og ÍAV undirrituðu samninginn 30. september, daginn eftir samþykkt borgarráðs.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab