Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glet…
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og á miðhálendinu.
Í dag verður sunnan 8-15 m/s og rigning með köflum eða skúrir, en allhvasst verður á Vestfjörðum fram eftir degi. Hitinn verður á bilinu 2 til 8 stig en það kólnar síðdegis með slydduéljum eða éljum.
Á morgun verður austlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og víða slydda eða snjókoma en úrkomuminna verður norðanlands. Það bætir í vind austantil síðdegis og hlýnar með rigningu eða slyddu, allhvasst eða hvasst þar með kvöldinu, en annars hægari. Hiti verður um frostmark en að 7 stigum austantil seinnipartinn.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
