Nína Richter skrifar: Kærleikur á kommentakerfum

Mynd

Ég heyrði einhvern tímann talað um að stelpur sem væru raunverulega sætar ættu það sameiginlegt að hrósa hiklaust öðrum sætum stelpum. Þetta er auðvitað einhver algjörlega glötuð staðhæfing, fengin úr iðrum feðraveldisins til þess að skipa konum í virðingarröð eftir fegurð, í einhverju stigveldi sem má bara verða eftir á fimmta áratugnum. En það er einhver baun þarna undir öllum þessum sextíu dýnum sem kitlar mig. Fólk sem hvílist í eigin sjálfsöryggi virðist hafa voðalega litla þörf fyrir að rakka aðra niður.

Ef við snúum okkur að aðeins alvarlegri málum þá hafa vanstilltir og virkir í athugasemdum átt rosalega viku. Þann 24. nóvember fór fram aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Það sem Semu Erlu er gefið að sök er að hafa tilkynnt sýslumanni of seint um fjársöfnun samtakanna. Samkvæmt ákærunni bar að tilkynna söfnunina áður en hún hófst en tilkynningin barst hálfu ári eftir að henni lauk. Sema Erla neitar sök.

Ég ætla að leyfa mér að dvelja aðeins við orðið tilkynna. Það eitt að lesa að kona hafi verið ákærð vegna fjársöfnunar gefur sterklega í skyn að þessir fjármunir hafi farið á rangan stað. Svo les maður fréttina og kemst að því að ágreiningurinn snýst um hvenær sýslumaður fékk að vita af söfnuninni. Það má alveg hafa skoðun á því. Sjálf hef ég komist nokkuð langt í laganámi án þess að verða vitni að nokkru sem líkist ástríðu fyrir tilkynningarskyldu, nema kannski helst hjá lögfræðingum.

Ég skoða eiginlega aldrei kommentakerfi. Ég átta mig á því að þar með fer ég á mis við mikið grín, flest óviljandi grín. En ég sneiði líka hjá miklu hatri og mannfyrirlitningu.

Það gladdi mig þess vegna að finna rannsókn sem birtist í Psychological Science árið 2024. Tveir sálfræðingar, Gordon Heltzel og Kristin Laurin, tóku sig til og lásu rúmlega sex þúsund tíst bandarískra öldungadeildarþingmanna. Guð hjálpi þeim. En þar kom í ljós að þingmennirnir fengu fleiri læk og endurbirtingar þegar þeir afgreiddu andstæðinga sína með fyrirlitningu. Þá næst spurðu rannsakendur fólk hvernig því líkaði það sem þingmennirnir skrifuðu. Þá kom í ljós að fólki þótti almennt meira til þess koma þegar þingmaður tók rök andstæðings síns til umræðu. Það var með öðrum orðum vinsælla að hegða sér eins og manneskja þó að læk-tölfræðin benti til annars.

Samkvæmt annarri rannsókn Williams J. Brady nokkurs, og samstarfsfólks hans, sem greindu 12,7 milljónir tísta og fylgdu greiningunni eftir með tilraunum, aukast líkurnar á því að fólk láti aftur í ljós fyrirlitningu ef það fékk góðar undirtektir síðast. Ég þarf kannski ekki að leita í ritrýnd fræðirit til að komast að því. Ef þú hefur einhvern tímann hlegið að barni segja prumpubrandara þá hefurðu sennilega séð sömu áhrifin.

Þegar ég settist niður og skrifaði þennan pistil var ég með skoðun. Ég hafði ætlað mér að halda því fram að fólk missti vitið á bak við lyklaborð og héldi þar jafnvel fram skoðunum sem það hefði ekki. Svo fór ég eitthvað að lesa hvað fræðin segja, og næst hugsa um hvernig í ósköpunum maður veit hvað einhverjum finnst einhvern tímann. Við vitum bara ekki neitt hvað aðrir hugsa. Fólk er upp til hópa meðvirkir lygarar og flest viljum við bara hanga í símanum á sófanum og borða snakk og láta ekki trufla okkur með einhverjum siðferðislegum álitaefnum, sérstaklega ekki í pistli á DV af öllum stöðum.

Aftur að kommentakerfinu. Í annarri rannsókn báðu William J. Brady og félagar fólk að meta hversu mikla reiði höfundar tísta hefðu fundið fyrir. Lesendurnir töldu tístið vera skrifað af miklu meiri heift en lá þarna að baki í raun og veru. Þeir fengu þannig mjög ýkta hugmynd um hversu mikill fjandskapur ríkti á milli fólks. Það finnst mér eiginlega einn óhugnanlegasti eiginleiki kommentakerfisins.

Og svo eru það fjölskyldurnar. Það gleymist auðveldlega í umræðunni til hvers var verið að safna. Palestínsku fjölskyldurnar sem um ræðir höfðu þegar fengið dvalarleyfi á Íslandi. Það var sem sagt búið að taka ákvörðun um að þær mættu koma hingað. Eftir stóð sá veigamikli hluti ferðalagsins að komast frá Gaza. Til þess var verið að safna peningunum.

Nú fer að koma tími til að taka fram jóladótið. María og Jósef mæta og lítið barn er í jötu lagt. Ég mundi söguna þannig að enginn hefði viljað taka á móti þeim, en þegar ég fletti upp í Lúkasi reyndist ég hafa gert fólkinu í Betlehem upp heldur verra innræti en guðspjallamaðurinn. Hann segir einfaldlega að það hafi ekki verið rúm fyrir þau. Skortur á rúmum var þekkt plága í Betlehem á þessum tíma, meira að segja öll ungbarnarúmin voru upptekin. Hjá Matteusi kemur svo að því að Jósef tekur barnið og móður þess og flýr með þau til Egyptalands undan Heródesi. Seinna í sama guðspjalli kemst Jesús sjálfur ágætlega að orði um gestrisnina: „gestur var ég og þér hýstuð mig.“ Það var raunar pláss fyrir fjölskyldurnar frá Gaza. Það var rúm fyrir þær. Þær voru komnar með það skriflegt frá íslenskum yfirvöldum.

Svo datt einhverjum í hug að við gætum lagt saman fyrir ferðinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab