Minnist sonar síns sem lést í sjóslysinu
Eggert Ellertsson lést í sjóslysinu á miðvikudag þegar Jökull ÞH299 sökk á Héraðsdjúpi um sextíu sjómílur austur af Glettingi. Eggert var 41 árs, fæddur 1985.
Móðir hans, Elín Halla Þórhallsdóttir, minnist sonar síns með færslu á Facebook:
„Það er með djúpri sorg og þungum hjörtum sem við tilkynntum að okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst,“ segir í færslunni.
„Hugur okkar er jafnframt hjá fjölskyldum og ástvinum þeirra sem einnig misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi, sem og öðrum skipverjum og aðstandendum þeirra.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗