Kom til Íslands en fær nú ekki leyfi
Usmani hefur sett fram harðlínusjónarmið um trúfrelsi, refsingar og kynferðismál. Hann flutti fyrirlestur í stærsta trúfélagi múslima hér á landi í október. Samsett mynd
Pakistanski trúarleiðtoginn Muhammad Taqi Usmani, sem kom til Íslands í síðasta mánuði og flutti meðal annars fyrirlestur í Stórmoskunni í Reykjavík, hefur þurft að fresta fyrirhugaðri heimsókn sinni til Bangladess eftir að stjórnvöld þar í landi veittu honum ekki leyfi.
Usmani, sem meðal annars hefur varið dauðarefsingu fyrir trúarfráhvarf, gagnrýnt afglæpavæðingu kynferðissamskipta samkynhneigðra og talað gegn jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði, átti að taka þátt í níu trúarlegum viðburðum í Bangladess í vikunni.
Þar á meðal átti hann að flytja predikun í þjóðarmosku landsins í höfuðborginni Dhaka á morgun.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗