Móðir minnist sonar síns sem lést í slysinu

Innlent | mbl | 26.11.2026 | 23:52

Skipið Jökull sökk autur af landinu í gær.

Skipið Jökull sökk autur af landinu í gær. Ljósmynd/Colourbox

Eggert Ellertsson er meðal þeirra þriggja sjómanna sem létu lífið þegar Jökull ÞH 299 sökk um 100 kílómetra austur af landinu í gær. Eggert var 41 árs gamall.

Frá þessu greina foreldrar hans á Facebook.

„Það er með djúpri sorg og þungum hjörtum sem við tilkynntum að okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst,“ segir í færslunni.

„Hugur okkar er jafnframt hjá fjölskyldum og ástvinum þeirra sem einnig misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi, sem og öðrum skipverjum og aðstandendum þeirra.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab