„Kanaríeyjar þola ekki meira“
Við höfnina í La Restinga á El Hierro, einni Kanaríeyja, á þriðjudag. Mennirnir voru um borð í einum sex báta sem yfirvöld komu til aðstoðar. AFP/Antonio Sempere
Fleiri en 2.100 farandmenn komu til Kanaríeyja á þriðjudag og hafa aldrei fleiri komið til eyjanna á einum degi. Fernando Clavijo, forseti heimastjórnar Kanaríeyja, óskaði í gær eftir neyðarfundi með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, vegna ástandsins.
„Kanaríeyjar þola ekki meira,“ skrifaði Clavijo á X í gær og sagðist telja það ósanngjarnt að eyjaskeggjar þyrftu einir að takast á við vanda af þessari stærðargráðu.
Flestir stigu á land á El Hierro, næstminnstu eyju eyjaklasans, þar sem um 11.400 manns búa.
Bátarnir komu frá Senegal og Gambíu. Meðal farandmannanna voru 203 konur og 127 börn, eitt þeirra fjögurra daga gamalt eftir að hafa fæðst um borð í einum bátanna á leiðinni yfir Atlantshafið. Einn farandmannanna lést á leiðinni.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗