Beið í óvissu eftir fréttum af syni sínum

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni.

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Í mínum huga hefði verið kraftaverk þótt það hefði bara komið einn í land,“ segir Hjalti Kristinsson, faðir Kristins Hrannars Hjaltasonar, skipstjóra Jökuls ÞH 299, í samtali við mbl.is.

Jökull sökk um 100 metra austur af Glettingi á sjötta tímanum í gær. Sautján manns voru í áhöfn skipsins og þar af létust þrír.

Fékk fyrstu fregnir í fjölmiðlum

Hjalti, sem býr í Danmörku, segist fyrst hafa lesið um slysið í fjölmiðlum áður en nokkur hafði samband við hann. Hann segir það hafa verið ónotalega upplifun.

„Ég hef ekki haft það gott,“ segir Hjalti í upphafi samtals við blaðamann.

„Gærdagurinn var þannig að það hringdi hérna góður vinur minn til að bjóða mér í aðventukaffi á sunnudaginn. Við erum báðir sjómenn og hann býr hér í götunni. Svo segir hann mér, þegar við höfum spjallað í svona hálftíma, að það sé skip í vanda úti af Austfjörðum,“ segir Hjalti.

„Ég opnaði svo íslensku fréttasíðurnar og sé að þetta er Jökull. Það var náttúrulega ekki þægileg tilfinning þegar það var ekki búið að láta mann vita af neinu.“

Hann hafði strax samband við tengdadóttur sína til að fá fréttir.

„Hrannar er alinn upp með mér á sjó. Við vorum búin að prófa ýmislegt saman, þannig að mér brá virkilega.“

Ruglingslegur og rangur fréttaflutningur

Hjalti segir biðina hafa einkennst af ruglingslegum og röngum fréttaflutningi. Það var ekki fyrr en í dag sem hann fékk staðfest að sonur hans væri óhultur og óslasaður.

„Ég er búinn að heyra í honum kannski í tvær eða þrjár mínútur. Það er náttúrulega hamast á honum,“ segir Hjalti.

Hjalti gagnrýnir að nafn skipsins hafi verið birt í fjölmiðlum áður en aðstandendum var gert viðvart.

„Það er alveg regla númer eitt ef svona slys verður. Þá á aldrei að birta nafn á skipi fyrr en að minnsta kosti aðstandendur þeirra sem eru um borð vita af ástandinu,“ segir hann.

„Mér fannst þetta virkilega óþægilegt og ósmekklegt.“

Kristinn Hrannar á sjö systkini. Hjalti segist hafa ákveðið í gærkvöldi, vegna þess hve fréttaflutningurinn var óáreiðanlegur, að láta fjölskylduna ekki vita fyrr en í morgun þegar hann vissi meira.

Hugurinn hjá þeim sem eiga um sárara að binda

Fjölskylda skipstjórans sendi í dag frá sér þakkarkveðju til allra sem komu að björguninni.

„Við höfum bara þörf fyrir að koma þessu frá okkur. Þetta var algjört þrekvirki sem var unnið,“ segir Hjalti.

Hann var sjálfur sjómaður á Íslandi alla starfsævina. „Ég veit alveg í hvaða sporum þessir karlar voru. Ég geri mér fulla grein fyrir því.“

Hjalti kallar eftir því að stjórnvöld komi þyrlumálum Landhelgisgæslunnar í lag. Hann segir að um það hafi verið rætt allt frá því hann byrjaði á sjó árið 1986.

Hjalti segir björgunina kraftaverk. Hugur hans sé þó hjá þeim sem eiga um sárara að binda.

„Það eiga aðrir um sárara að binda heldur en við. Það var leiðinlegt að þetta kláraðist ekki alveg, en í mínum huga hefði verið kraftaverk þótt það hefði bara komið einn í land. Þetta eru bara þannig aðstæður.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab