Hafna kröfu um stöðvun útboðs vegna hjúkrunarheimilis

Vetrarmýri í Garðabæ er samtals 20 hektara byggingaland í eigu Garðabæjar. Ljósmynd/Garðabær

Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu ÞG verktaka ehf. um að innkaupaferli Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs hjúkrunarheimilis og þjónustumiðstöðvar í Vetrarmýri verði stöðvað um stundarsakir.

ÞG verktakar kærðu ákvörðun Garðabæjar frá 20. október um að hafna umsókn fyrirtækisins um þátttöku í lokuðu útboði vegna verkefnisins. Alls bárust átta umsóknir í forvali vegna útboðsins en sex fyrirtæki voru talin uppfylla hæfiskröfur forvalsins.

Ákvörðun kærunefndarinnar er dagsett 23. nóvember. Endanlegur úrskurður í málinu liggur ekki fyrir en innkaupaferlið getur haldið áfram að svo stöddu.

Kröfur um 500 milljóna króna leigutekjur

Garðabær auglýsti í ágúst eftir umsóknum um þátttöku í lokuðu útboði vegna hönnunar, uppbyggingar og útleigu húsnæðis fyrir hjúkrunarheimilið og þjónustumiðstöðina.

Meðal þeirra hæfiskrafna sem gerðar voru til umsækjenda var að leigutekjur þeirra hefðu numið að minnsta kosti 500 milljónum króna á síðasta rekstrarári samkvæmt síðasta ársreikningi.

Þá var gerð krafa um reynslu af að minnsta kosti tveimur sambærilegum verkefnum á síðustu tíu árum. Jafnframt skyldu umsækjendur hafa í eignasafni sínu að minnsta kosti þrjár fasteignir, hverja um sig stærri en 2.000 fermetra, sem þeir rækju og héldu við.

Garðabær hafnaði umsókn ÞG verktaka á þeim grundvelli að fyrirtækið uppfyllti ekki framangreindar kröfur. Þá hefðu engar samstarfs- eða viljayfirlýsingar frá öðrum aðilum fylgt umsókninni.

Byggðu á getu systurfélags

ÞG verktakar kærðu ákvörðun Garðabæjar 6. nóvember og kröfðust þess að hún yrði felld úr gildi. Til vara var þess krafist að kærunefndin léti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu sveitarfélagsins gagnvart fyrirtækinu.

ÞG verktakar byggðu á því að fyrirtækinu hefði verið heimilt að styðjast við fjárhagslega og faglega getu systurfélagsins Reykjastrætis ehf. Félagið ætti og ræki fjölda fasteigna sem ÞG verktakar hefðu annast byggingarframkvæmdir fyrir.

ÞG verktakar töldu að eignarhaldstengsl félaganna tryggðu fyrirtækinu aðgang að getu Reykjastrætis og að sérstök skuldbindandi samstarfsyfirlýsing væri því óþörf.

Garðabær byggði hins vegar á því að ekki hefði verið sýnt fram á að Reykjastræti hefði skuldbundið sig til samstarfs við ÞG verktaka vegna verkefnisins, eins og kveðið væri á um í forvalsgögnum.

Virðist hafa verið rétt að hafna umsókninni

Í ákvörðun kærunefndar útboðsmála kemur fram að einkahlutafélög séu sjálfstæðar lögpersónur þrátt fyrir eignarhaldstengsl þeirra.

ÞG verktakar hafi því ekki getað byggt á hæfi Reykjastrætis nema fyrir lægi fullnægjandi yfirlýsing frá síðarnefnda félaginu. Slíkrar yfirlýsingar hafi ekki verið aflað og hún því ekki fylgt umsókninni.

Að mati kærunefndarinnar virðist Garðabæ, eins og málið liggur nú fyrir, hafa verið rétt að hafna umsókn fyrirtækisins.

Nefndin telur jafnframt að Garðabæ hafi ekki verið skylt að leita frekari skýringa hjá ÞG verktökum vegna þessa annmarka, enda hafi verið um grundvallarþátt umsóknarinnar að ræða.

Það er niðurstaða nefndarinnar að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup sem leitt gæti til ógildingar ákvörðunar Garðabæjar. Var kröfu ÞG verktaka um stöðvun innkaupaferlisins því hafnað.

Úr öðrum kröfum fyrirtækisins verður leyst með endanlegum úrskurði.

Sex fyrirtæki komust áfram

Á fundi bæjarráðs Garðabæjar 20. október var samþykkt að bjóða sex fyrirtækjum þátttöku í lokaða útboðinu.

Eru það Eik fasteignafélag, Eykt, Heimar atvinnuhúsnæði, Kaldalón, Laki og Reitir atvinnuhúsnæði. Öll fyrirtækin sex voru talin uppfylla hæfiskröfur forvalsins að fullu.

Stefnt að opnun árið 2029

Samkomulag ríkisins og Garðabæjar um uppbyggingu hjúkrunarheimilisins var undirritað 16. mars.

Samkvæmt útboðsauglýsingu Garðabæjar er gert ráð fyrir að byggingin verði tæplega 9.000 fermetrar að stærð og rúmi um 100 hjúkrunarrými auk þjónustumiðstöðvar fyrir dagdvöl, dagþjálfun eða aðra þjónustu sem samræmist rekstri hjúkrunarheimilisins.

Leitað er að aðila sem tekur að sér að hanna og reisa bygginguna og leigja ríkinu og Garðabæ húsnæðið.

Samkvæmt samkomulagi ríkisins og sveitarfélagsins útvegar Garðabær ríkinu lóðina endurgjaldslaust. Gert er ráð fyrir að ríkið leigi húsnæði hjúkrunarheimilisins til 20–30 ára en að Garðabær leigi jarðhæð byggingarinnar undir þjónustumiðstöðina.

Stefnt er að því að hjúkrunarheimilið verði opnað árið 2029.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab