Sjáðu ofurmána lýsa upp næturhimininn

Í fyrrakvöld mátti sjá svokallaðan ofurmána á himni og í þessu myndskeiði sést hvernig hann lýsti upp næturhiminn Rómar, höfuðborgar Ítalíu.

Fullt tungl í nóvember virðist sérstaklega stórt og bjart þegar það nálgast þann punkt á braut sinni sem er næstur jörðu. 

Sævar Helgi Bragason, sem yfirleitt er kallaður Stjörnu-Sævar, skrifaði um fullt tungl í gær í hópnum Ísland að nóttu á Facebook og sagði að um væri að ræða það fulla tungl ársins sem væri næstnálægast jörðu. 

Næsta fulla tungl er á aðfangadagskvöld og verður það um 4.000 km nær okkur. Segir hann  þessi stærstu fullu tungl ársins oft virðast stærri en önnur og því gjarnan talað um þau sem ofurmána.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab