Laufabrauðsjárnin eru listasmíði Björns
Rennismíði krefst útsjónarsemi og er kannski öðrum þræði list, segir Björn Jensen hér á verkstæði sínu á Selfossi. Þessi kann handtökin. mbl.is/Sigurður Bogi
„Laufabrauðsmenningin lifir um land allt. Á hverju hausti smíða ég alltaf nokkra tugi járna sem í útskurðinn þarf og eftirspurnin helst, þótt árin líði,“ segir Björn Jensen rennismiður á Selfossi.
Hann var nú í vikunni að ganga frá laufabrauðsjárnum sem hann smíðar; það er stykki þar sem á litlu skafti er kefli með mynstri sem rúllað er yfir hveitikökurnar áður en þær eru settar í steikarpott. Í mörgum fjölskyldum ríkir sú hefð að fólk hittist á aðventunni til þess að skera í laufabrauðskökur eða þá rúlla járninu yfir þær. Myndmál í brauði verður ekkert síður fallegt með þeirri aðferð en ef handskorið er.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗