Myndskeið: Reyndi að róa liðsfélaga sem missti stjórn

Brynjólfur Andersen Willumsson reyndi að róa markvörð sinn.

Etienne Vaessen, markvörður Groningen, fékk rauða spjaldið eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu vegna vítaspyrnudóms undir lok leiks þegar lið hans tapaði 4:3 fyrir AZ í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta fyrr í mánuðinum.

Dómarinn Jannick van der Laan dæmdi vítaspyrnu fyrir brot Vaessen á Ayoub Oufkir og gaf markverðinum gula spjaldið.

Vaessen mótmælti harðlega og hélt áfram að rífast, sem varð til þess að hann fékk annað gula spjaldið fyrir mótmæli.

Liðsfélagar hans þurftu síðan að halda aftur af honum þegar hann reyndi að ganga að dómaranum. Þar var Brynjólfur Willumsson fremstur í flokki, eins og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.

Brynjólfur skoraði annað mark Groningen í leiknum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab